Tónlist

McCartney fær Bítlalögin í arf

friður? Jackson vill grafa stríðsöxina með því að ánafna McCartney sinn hluta af Bítlalögunum í erfðaskrá sinni.
friður? Jackson vill grafa stríðsöxina með því að ánafna McCartney sinn hluta af Bítlalögunum í erfðaskrá sinni.

Popparinn Michael Jackson ætlar að ánafna Sir Paul McCartney sinn hluta af stefgjöldum Bítlalaganna í erfðaskrá sinni. Jackson, sem nýlega vísaði því á bug að hann væri alvarlega veikur, vonast til að með þessu nái hann sáttum við McCartney.

„Michael sagði lögfræðingum sínum að hann væri hættur að tala við Sir Paul og því vilji hann breyta,“ sagði heimildarmaður dagblaðsins The Mirror. Árið 1985 bauð Jackson hærra en McCartney og Yoko Ono í stefgjöld yfir tvö hundruð Bítlalaga og síðan þá hefur McCartney neitað að tala við fyrrum vin sinn sem hafði sungið með honum lögin Say Say Say og The Girl is Mine.

Árið 1995 seldi Jackson helminginn af rétti laganna til Sony. Samt er talið að hann þéni um 40 milljónir punda á ári fyrir helminginn sem stóð eftir, eða um 7,1 milljarð króna.

Stutt er síðan McCartney gerði grín að Jackson í viðtali við BBC sem á endanum var ekki birt. Jafnframt sagði hann þetta í viðtali fyrir nokkrum árum: „Það er ekki gaman að fara í tónleikaferð og þurfa að borga fyrir að syngja mín eigin lög. Í hvert sinn sem ég syng Hey Jude þarf ég að borga fyrir það.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.