Lífið samstarf

Mið­bær Nashville kemur til Reykja­víkur og Akur­eyrar

Jamboree Entertainment
Meðal annars verða flutt lög eftir Dolly Parton, Johnny Cash, Willie Nelson og Patsy Cline.
Meðal annars verða flutt lög eftir Dolly Parton, Johnny Cash, Willie Nelson og Patsy Cline.

Ein vinsælasta kántrísýning Evrópu, A Country Night in Nashville, snýr aftur til Íslands á næsta ári. Sannkölluð veisla fyrir kántrí aðdáendur.

Hún kemur hingað beint úr sannkallaðri sigurgöngu eftir uppselda tónleika í Reykjavík árið 2025, frábærar sýningar í Þýskalandi og Royal Albert Hall, ásamt metsölu tónleikaferðalagi í Bretlandi. Í febrúar mætir hópurinn aftur í Hörpu og stígur auk þess í fyrsta sinn á svið í Hofi á Akureyri. Þetta er einstök upplifun sem enginn ætti að láta framhjá sér fara.

Sýningin A Country Night in Nashville færir á svið orku og andrúmsloft sem einkennir víðfræga bari í höfuðborg kántrí tónlistarinnar í Bandaríkjunum. Sex manna hljómsveitin Dominic Halpin & The Hurricanes flytur stærstu smelli kántrítónlistarinnar eftir helstu stjörnur fortíðar og nútíðar. Sveitin hefur heillað áhorfendur með sönnum kántrí hljómi og framúrskarandi hljóðfæraleik. Aðdáendur kántrí tónlistar eiga því von á sannkallaðri veislu.

Tónleikagestir eiga von á miklu tónlistar ferðalagi í gegnum nokkrar kynslóðir kántrítónlistar. Meðal annars verða flutt lög eftir Dolly Parton, Johnny Cash, Willie Nelson, Patsy Cline, Alan Jackson, Shania Twain, George Strait, Lady A og Ella Langley.

Dominic Halpin er talinn einn eftirsóttasti listamaðurinn í sínum geira. Söngvarinn og gítarleikarinn hefur deilt sviði með alþjóðlegum stórstjörnum á borð við Sir Cliff Richard, Tony Bennett og Emeli Sandé, samið tónlist fyrir kvikmyndir og sjónvarp og meira að segja tekið upp plötu í Nashville ásamt fyrrum trommuleikara Elvis Presley. 

Með honum koma fram Donna Marie (söngur og hljómborð), Ben Wiltshire (bassi), James Walker (trommur) og Matt Wells (gítar og banjó). Nýjasti liðsmaður sýningarinnar er Paul Harding, sem spilar á fiðlu, gítar, harmonikku, mandólín og píanó ásamt því að syngja bakraddir. Saman munu Dominic Halpin og The Hurricanes færa Nashville stemninguna til Íslands.

Fluttir verða tímalausir smellir á borð við 9 to 5, Ring of Fire, Crazy og The Gambler, í bland við nýrri kántrí smelli á borð við Man! I Feel Like a Woman, Need You Now, Trailblazer og Choosin’ Texas. Sýningin A Country Night in Nashville býður því upp á tónleika sem eru fullir af tilfinningu, orku og ógleymanlegum lögum.

„Ég er virkilega spenntur fyrir því að koma aftur með A Country Night in Nashville í Hörpu, nú með nýjum lögum og nýjum tónlistarmönnum, og jafnframt að fá að kynna þessa líflegu sýningu fyrir áhorfendum á Akureyri. 

Vinsældir kántrítónlistar hafa rokið upp á heimsvísu á síðustu árum og sýningin okkar þróast sömuleiðis stöðugt. Við bætum við lögum með frábæru nýju tónlistarfólki á borð við Ella Langley, í bland við öll klassísku lögin sem við þekkjum og elskum. 

Þetta eru tveir tímar af stærstu kántrísmellunum, kröftugum söng og sjóðheitri hljómsveit í miklu stuði,” segir James Cundall, sem stýrir breska framleiðslufyrirtækinu Jamboree Entertainment.

Tónleikarnir A Country Night in Nashville fara fram í Eldborg í Hörpu föstudaginn 12. febrúar 2027 kl. 20:00 og í Hofi á Akureyri laugardaginn 13. febrúar kl. 20:00. Miðaverð er frá 9.990 til 14.990 kr. á tónleikana í Hofi, og frá 6.990 til 16.990 kr. í Hörpu. Miðasala er þegar hafin á tix.is.

Sýningin A Country Night in Nashville er framleidd af breska fyrirtækinu Jamboree Entertainment eins og áður segir. Meðal annarra sýninga á þeirra vegum árið 2026 má nefna The Legend of Springsteen, The Ultimate Eagles, The Definitive Rat Pack, Emilio Santoro as Elvis, Mania: The ABBA Tribute og Sir Bryn Terfel. Þann 20. nóvember næstkomandi kemur fyrirtækið með sýninguna Celebrating George Michael í Hof á Akureyri og daginn eftir, þann 21. nóvember, verður hún sett upp í Hörpu. 

Til að enda árið á skemmtilegum nótum munu tvö stórnöfn frá 8. og 9. áratugnum koma saman á stórfenglegum jólatónleikum í Hörpu þann 19. desember. Þar munu koma fram hin þekkta diskósveit Boney M., undir forystu upprunalega meðlimsins Liz Mitchell, ásamt Herberti Guðmundssyni sem á sér sérstakan stað í hjörtum Íslendinga. Auk þess er von á fjölda annarra spennandi alþjóðlegra listamanna á vegum fyrirtækisins árið 2027.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.