Ólafi verður ekki snúið Henry Birgir Gunnarsson skrifar 3. júní 2009 13:30 Ólafur ætlar ekki í landsliðsbúninginn á næstunni. Nordic Photos/AFP
Ólafur Stefánsson segist ekki ætla að endurskoða þá ákvörðun sína að taka ársfrí frá landsliðinu þó svo landsliðið sé í miklum vandræðum vegna meiðsla lykilmanna þessa dagana og eigi erfiða leiki í mánuðinum. „Ég mun ekki spila. Ég hef einu sinni verið plataður til þess að koma aftur þegar ég tók mér frí og það var ekki góð reynsla," sagði Ólafur við Vísi. „Ég lét plata mig til Túnis 2005 og hausinn á mér var þá búinn að segja að ég ætti ekki að vera þar og þá fylgdi líkaminn bara með. Ég var ekki í neinu standi á því móti. Það var versta móti sem ég hef spilað með landsliðinu. „Ég ætla að læra af því og einnig að standa við mín orð. Ég sagðist ætla að fara í frí í eitt ár og sjá svo til. Það stendur enn," sagði Ólafur sem vonast þó að sjálfsögðu til þess að strákarnir standi sig vel og komist til Austurríkis næsta janúar. „Þeir eru í góðum málum og þurfa að vinna annan heimaleikinn. Þá eru þeir í fínum málum," sagði Ólafur og bætti við. „Það má vel vera að eitthvað af þessum meiddu leikmönnum séu leikfærir ef þeir bíta á jaxlinn. Ég veit ekki hversu alvarleg staðan er hjá þeim öllum. Þeir verða líka að spyrja sjálfa sig að því hverju þeir séu til í að fórna," sagði Ólafur Stefánsson.
Íslenski handboltinn Mest lesið „Viðbjóðsleg“ frammistaða sem lætur stjóra missa starfið Enski boltinn „Væri gaman að spila við þá í hverri einustu viku” Íslenski boltinn Fær Njarðvík frekar stimpilinn? Íslenski boltinn Stillti upp fartölvu til að mótmæla Fótbolti Tap hjá Sverri í Aþenuslagnum Fótbolti Ólæti vörpuðu skugga á dramatískan borgarslag Fótbolti Uppgjörið: Valur - Víkingur 2-3 | Draumamark Tariks kom Víkingi á toppinn Íslenski boltinn „Gleymist að við tókum líka Kjarnafæðisbikarinn og getum unnið þrefalt“ Sport Guðmundur og Arnór fögnuðu góðum sigri Handbolti Uppgjörið: KR - Fram 7-1 | Benóný Breki og KR með sýningu Íslenski boltinn Fleiri fréttir Guðmundur og Arnór fögnuðu góðum sigri Greið leið fyrir Bjarka, Ómar og Gísla í undanúrslit HM Elliði Snær frábær í sigri Gummersbach Bjarki með átta gegn Brössum Tap gegn Tékkum í lokaleiknum Þorsteinn Leó fór hamförum „Varnarleikurinn var skelfilegur” FH á toppinn eftir sigur í Garðabæ „Komnir með miklu fleiri stig en ég átti von á“ Uppgjörið: Fram - Haukar 37-34 | Framarar gengu á lagið í síðari hálfleik Tíu marka sigur Íslands Viktor Gísli öflugur gegn PSG ÍBV og Grótta með sigra Andri Már spilaði stóran þátt í sigri Leipzig Töpuðu með ellefu í Tékklandi Haukur frábær í öruggum sigri Búkarest Sporting rúllaði yfir Veszprém Loks vann Valur leik Sigvaldi Björn magnaður í fyrsta sigri Kolstad HR og HSÍ taka höndum saman: „Engin meðalmennska hér, það er tekið á því“ Serbarnir fá aldrei aftur að dæma Háspenna er FH vann Hafnarfjarðarslaginn Hörmulegur seinni hálfleikur varð þýsku meisturunum að falli Orri skoraði þrjú er Sporting valtaði yfir Íslendingaslaginn Fínn leikur Íslendinganna í Þýskalandi dugði ekki til Þjálfarinn í byrjunarliðinu: „Mér fannst þörf á smá aga í leikinn“ Sjö mörk Jóhönnu hjálpuðu til við að landa fyrsta sigrinum Uppgjörið: Fjölnir - HK 28-27 | Flautumarkið fékk ekki að standa og Fjölnir slapp með sigur Ihor fór mikinn í stórsigri Aftureldingar Fullkomin byrjun lærisveina Arnórs heldur áfram Sjá meira