Löggur lemja löggur Óli Tynes skrifar 16. október 2009 10:32 Það eru engin vettlingatök hjá dönsku lögreglunni.
Búist er við að mikill mannfjöldi steðji til Danmerkur þegar loftslagsráðstefna Sameinuðu þjóðanna verður haldin þar í desember. Það verða ekki aðeins ráðstefnugestir heldur einnig ýmsir hópar mótmælenda úr öllum heimshornum. Oftar en ekki kemur til óeirða á svona stórfundum og danska lögreglan er þegar byrjuð að búa sig undir slaginn. Þar eru menn á látlausum æfingum sem eru svo raunverulegar að flytja hefur þurft marga lögregluþjóna á sjúkrahús. Lögreglumönnum er skipt í tvo hópa. Annar hópurinn og sjá fjölmennari leikur mótmælendur og í hinum hópnum eru svo löggur sem leika sjálfa sig. Meðal þeirra sem þurfti að flytja á sjúkrahús var lögreglukona sem var slegin í bakið með kylfu þegar hún neitaði að hlýða skipun um að setjast í götuna. Viðbrögð þjálfunarstjórans voru blendin. -Það á náttúrlega ekki að hrósa lögreglumönnum fyrir að slá með kylfu, en höggið var flott. Þetta var alveg eftir kúnstarinnar reglum. Þvert yfir hrygginn. Í öðru tilfelli var lögreglumanni skipað að beita kylfunni. Hann var svo ákafur að þegar hann reiddi bareflið til höggs lenti það á enni næsta lögreglumanns fyrir aftan hann. Hann steinlá. Það er harkan sex, hjá dönsku lögreglunni.
Loftslagsmál Mest lesið Bjóða upp á tjaldsvæði inni Innlent Kveikt í púðurtunnu í Mið-Austurlöndum Erlent Saka Þorgerði um brot á þingsköpum Innlent Að kljúfa þjóðina með tilfinningaþrunginni spurningu Innlent Kostar allt að 210 þúsund krónum að vera í golfklúbbi Innlent „Ég var ekki að deyja, en ég þurfti hjálp“ Innlent Fréttinni skylt að birta andsvar Sigurbjargar Innlent Grimmdarlegu ofbeldi lýst í ákærunni Innlent Eldhaf í Glasgow Erlent Vaxandi ótti við langvarandi átök Erlent Fleiri fréttir Vaxandi ótti við langvarandi átök Skutu niður eldflaugar í landhelgi Tyrklands Rannsaka heimagerða sprengju sem hryðjuverk Felldu sex í árás á enn einn bátinn Eldhaf í Glasgow Kveikt í púðurtunnu í Mið-Austurlöndum Segir sig og Netanyahu munu ákveða hvenær þeir hætta Sonur Khamenei nýr leiðtogi Írans Ræddust við í síma í kjölfar ummæla Trump um Breta Segir af sér vegna samnings Pentagon við gervigreindarfyrirtæki Til skoðunar hvort um hryðjuverk sé að ræða Sprenging við bandaríska sendiráðið í Osló Hóta öllum mögulegum arftökum Khamenei „Þess í stað eru þeir ræflar svæðisins“ Leiðtogar kalla eftir breytingum á erfðaröðinni Soham-morðinginn látinn Segir kröfu Bandaríkjanna um skilyrðislausa uppgjöf Íran draum Segir Kúbu brátt munu falla Rússar hjálpa Írönum að finna skotmörk Segir ekkert annað en uppgjöf Írana koma til greina Birtu viðtölin um Trump sem vantaði í Epstein-skjölin Hættir við framboð sitt í kjölfar játningar um framhjáhald Telja líklegt að þeir hafi drepið írönsku skólastúlkurnar Skurðlæknir í Lundúnum fjarlægði blöðruhálskirtil á Gíbraltar Grænmetis„borgarar“ í lagi en ekki grænmetis„beikon“ Bandaríkjamenn heimila Indverjum að kaupa olíu frá Rússlandi Bandaríkin og Ísrael boða harðari árásir á næstu dögum Handleggsbrotinn eftir átök við þingmann Noem rekin Leita til Úkraínumanna vegna íranskra sjálfsprengidróna Sjá meira