Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Kjartan Kjartansson skrifar 16. október 2026 15:30 Johannes Natland náðist á upptöku öryggismyndavélar á flugvellinum í Manchester þegar hann kom þangað í mars í fyrra. Tilgangur ferðarinnar var að myrða mann fyrir sænsku glæpaamtökin Foxtro. Hryðjuverkadeild bresku lögreglunnar Breskur dómstóll dæmdi ungan norskan karlmann í tuttugu ára fangelsi fyrir að hyggja á leigumorð fyrir sænska glæpasamtök á Englandi. Ekki liggur fyrir hvern hann átti að myrða.
Johannes Natland var átján ára ára gamall þegar hann var tekinn fastur á hóteli í Huddersfield í Vestur-Jórvíkurskíri á Englandi í mars í fyrra. Á herbergi hans fundust tvær byssur auk skotfæra. Hann játaði á sig vörslu á skotvopnunum. Natland var fundinn sekur af ákæru um að hafa lagt á ráðin um morð í sumar. Í dag var honum gerð tuttugu ára fangelsisrefsing, að sögn breska ríkisútvarpsins. Hann þarf að afplána að minnsta kosti þrettán ár af henni. Saksóknarar sögðu að Foxtrot, alræmd sænsk glæpasamtök með tengsl við írönsk stjórnvöld, hefðu gert Natland út af örkinni. Fyrir það hefði hann átt að fá 270 þúsund norskar krónur, jafnvirði tæpra þriggja og hálfrar milljónar íslenskra króna. Þeir gátu þó ekki tilgreint hvern Norðmaðurinn hefði verið fenginn til þess að ráða af dögum. Natland fékk leiðbeiningar um hvert hann ætti að fara í gegnum myndbönd á samskiptamiðlinum Signal. Byssur, stolinn bíll og reiðufél beið hans þar. Upp komst um launráðin þegar norska lögreglan handtók ungling sem hafði fengið Natland til verksins. Samskipti um leigumorðið í Bretlandi fundust á síma hans. Enska lögreglan náði svo að hafa hendur í hári Natland áður en hann náði skotmarki sínu. Natland er frá Stavangri í Suðvestur-Noregi. Hann er sagður hafa leiðst út í fíkniefnaneyslu þegar hann var unglingur og flosnað upp úr námi. Verjandi hans bar því við að hann væri andlega veikur af völdum neyslunnar. Sænsk glæpasamtök eru þekkt fyrir að fá unglinga til þess að vinna skítverk fyrir sig, þar á meðal að fremja morð og skemmdarverk, í gegnum samfélagsmiðla.
Noregur Bretland Erlend sakamál Mest lesið Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Innlent Sjö ára dómur Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Veður „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Ekki ástæða til að rýma bankann Innlent Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað Innlent Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Innlent Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Innlent Georg Páll er næsti forseti ASÍ Innlent Fleiri fréttir Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Tuttugu og sjö nemendur látnir eftir að þak skóla hrundi „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Gefur í skyn að bandarísk stjórnvöld hafi sett takmarkanir á Úkraínumenn Brösugleg byrjun hjá nýjum talsmanni Trumps Handteknir fyrir að féfletta NATO-skip í Noregi Fundu elsta skipsflak heims Árásum fjölgar og Íranir ætla að loka Hormússundi aftur Takmarkanir á Starlink í Úkraínu: „Þetta getur ekki verið tilviljun“ Yfir hálf milljón án rafmagns í Kænugarði eftir árásir Rússa í nótt Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Styður Repúblikana með tugum milljarða Páfinn greindist með lungnakrabbamein Fjörutíu ár fyrir morðið á Tupac Aðgerð páfa gekk vel Staðfestir að Rússar höfðu afskipti af Brexit Sjá meira