Ármann krækti í Davis áður en hann fór af landi Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. nóvember 2009 19:15 John Davis sést hér í leik með Blikum á móti Snæfelli. Mynd/Anton
1. deildarlið Ármanns hefur gert samning við Bandaríkjamanninn John Davis um að hann spili með liðinu í vetur. Davis byrjaði tímabilið í herbúðum Breiðabliks í Iceland Express deildinni en var látinn fara á dögunum þar sem Blikar töldu sig þurfa að vera með tvo erlenda leikmenn í stað eins áður. John Davis er 190 sem framherji en hann var með 20,3 stig og 9 fráköst að meðaltali í fyrstu sex leikjum Blika en Kópavogsliðið vann þá aðeins einn þeirra. Davis átti sinn besta leik í eina sigrunum sem var á móti FSu en hann var þá með 29 stig og 16 fráköst á aðeins 24 mínútum. „John hefur æft með Ármanni síðustu viku og er í fínu formi og er tilbúinn fyrir leik kvöldsins en kl. 19.15 mætast Hrunamenn og Ármann á Flúðum. Aðspurður segist John lítast vel á liðið og hlakkar til að geta lagt sitt af mörkum fyrir Ármann," segir í Frétt á heimasíðu Ármenninga. Ármann er í 6. sæti 1. deildarinnar með 2 sigra og 3 töp í fyrstu fimm leikjunum. Liðið vann öruggan 91-55 sigur á Þór Akureyri í síðasta leik og er til alls líklegt með Davis innanborðs.
Íslenski körfuboltinn Mest lesið Tekur meira á fjölskylduna en hann sjálfan Íslenski boltinn Fór á sjó til að núllstilla sig: „Þetta sleppur hjá mér“ Íslenski boltinn Felldu og afklæddu styttur af fótboltamönnum Sport Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust Körfubolti Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Enski boltinn Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar Enski boltinn Er búinn að glíma við þunglyndi Fótbolti Ögmundur laus allra mála hjá Val Íslenski boltinn „Stúkan er of þögul“ Fótbolti „Þetta hefur verið ótrúlega erfitt“ Sport Fleiri fréttir Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Sjá meira