Ólíklegt að framhald verði á málum embættismanna 14. apríl 2010 05:15 atli gíslason Formaður þingmannanefndarinnar segir að spurningar um ábyrgð verði ræddar í nefndinni á föstudaginn.
Ólíklegt er talið að frekar verði aðhafst vegna mála þeirra fjögurra fyrrverandi embættismanna sem Rannsóknarefnd Alþingis telur að hafi vanrækt starfsskyldur sínar. Þar er um að ræða fyrrverandi forstjóra Fjármálaeftirlitsins og bankastjórn Seðlabankans. Sérstök þingmannanefnd hefur það hlutverk að ákveða hvort látið verði reyna á ábyrgð þeirra þriggja ráðherra, sem nefndin taldi hafa vanrækt starfsskyldur sínar, með málshöfðun fyrir Landsdómi. Ef af verður gætu ráðherrarnir fyrrverandi fengið allt að því tveggja ára fangelsisdóm. Hvað varðar embættismennina fjóra er réttarstaðan allt önnur. Þeir hafa allir látið af störfum. Landsómur fjallar aðeins um meint brot ráðherra og Rannsóknarnefndin vísaði málum fjórmenninganna ekki til ríkissaksóknara. Heimildarmenn Fréttablaðsins telja að hvorki löggjöf landsins né skýrsla rannsóknarnefndar svari því hvort aðhafast eigi frekar vegna mála embættismannanna. Atli Gíslason, formaður þingmannanefndar sem fjallar um viðbrögð við skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis sagði að spurningar um ábyrgð væru óræddar en verði teknar fyrir í nefndinni á föstudag.- pg
Rannsóknarskýrsla Alþingis Mest lesið Egill Þór er látinn Innlent Setti ofan í við Ingu: „Vert þú ekki með þennan skæting við mig“ Innlent Brást of harkalega við dyraati Innlent Flugferðum aflýst Innlent Hyggst greiða atkvæði með bókun 35 Innlent Bagalegt að Sigríður og Helgi Magnús geti ekki unnið saman Innlent Hvalveiðilögin barn síns tíma Innlent Lokað um Þrengsli og vegir víða á óvissustigi Veður „Þetta er farið að að bera meira keim af einelti en löglegri stjórnsýslu” Innlent Brenndi konu til bana í neðanjarðarlest í New York Erlent Fleiri fréttir Segir ríkisstjórnarsáttmálana keimlíka Eitt Egilsstaðaflug en annars öllu aflýst Hvalveiðilögin barn síns tíma Hyggst greiða atkvæði með bókun 35 Sigurður Ingi segir áberandi glufur í sáttmálanum Endurskoða lög um hvalveiðar á kjörtímabilinu Bagalegt að Sigríður og Helgi Magnús geti ekki unnið saman „Skítaveður á aðfangadagskvöld og jóladag“ Óveður um jólin og Inga tók lagið á fyrsta fundi ríkisstjórnar Brást of harkalega við dyraati Inga tók jólalag á fyrsta fundi Berglind nýr dómandi við Endurupptökudóm Flugferðum aflýst Vegur að Patreksfirði lokaður vegna snjóflóðs Egill Þór er látinn Nýir ráðherrar ætli að vinna saman og ekki loka sig af Flæddi inn í hús á Arnarnesi Ný ríkisstjórn fundar í dag „Þetta er farið að að bera meira keim af einelti en löglegri stjórnsýslu” Missti stjórn á bílnum og endaði inni í garði Lyklaskipti í máli og myndum: „Þetta er voldugur lykill“ Hvít jól, gular viðvaranir og varasamt ferðaveður Nýr flugvöllur opnar nýjar dyr fyrir Suður-Grænland Tvö tröllvaxin mál og sækja eigi tekjurnar í fiskinn „Heimsins furðulegasti fiskur“ afhentur í fjármálaráðuneytinu Kirkjutröppurnar opnaðar að nýju og hiti í hverju þrepi Setti ofan í við Ingu: „Vert þú ekki með þennan skæting við mig“ Umferðartafir vegna bílveltu á Mýrum Lyklaskipti og afmæli elsta Íslendingsins Segir Helga Magnús óhæfan til að gegna embættinu Sjá meira