Júlíus: Ég hef áhyggjur af öllu Stefán Árni Pálsson skrifar 21. október 2010 22:28 Júlíus Jónasson, þjálfari Vals. Mynd/Stefán „
Ég er bara hálf orðlaus," sagði Júlíus Jónasson, þjálfari Vals, eftir að lið hans hafði verið niðurlægt í Safamýrinni í kvöld. Fram rótburstaði Val 40-23 í þriðju umferð N1-deild karla. „Spilamennskan var karakterslaus, metnaðarlaus og hreint út sagt skelfileg. Við vorum að spila á móti sterku Framliði en það er alls ekki svona mikill munur á liðunum. Í leiknum í kvöld vorum við sjálfum okkur verstir," sagði Júlíus. Valsmenn misstu marga gríðarlega mikilvæga leikmenn fyrir tímabilið og eru í raun með alveg nýtt lið í ár. „Fyrir tímabilið misstum við flesta leikmenn allra liða í deildinni og í raun misstum við líka mikilvægustu leikmennina. Við þurftum að byggja upp alveg nýtt lið og höfum fengið marga leikmenn til okkar. Eitt er að slípa leikmennina saman og annað er að fá menn til berjast og gefast aldrei upp en barátta og vinnusemi er hlutur sem okkur sárvantar." Leikur Valsmanna var vægast sagt slæmur í kvöld og Júlíus á erfitt verk fyrir höndum. „Það er nokkuð ljóst að það bíða okkur fullt af verkefnum á næstu dögum ." Júlíus gat ekki nefnt einn ákveðinn hlut sem hann hafði mest áhyggjur af eftir leikinn í kvöld en hann sagði að lokum „Ég hef áhyggjur af öllu."
Olís-deild karla Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Íslenski boltinn Tár féllu í Bakgarðshlaupinu Sport Nokkuð viss um að Íslandsmetið verði slegið Sport Finnur til með Arnari Handbolti Tvö lið hætt við HM og Spánverjar hlaupa í appelsínugulri viðvörun Sport Kærkominn sigur KA/Þór Handbolti „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Fótbolti Fleiri fréttir Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Sjá meira