Marel veitir hópi starfsmanna kaupréttarsamninga 10. maí 2010 18:54
Stjórn Marel hf. ákvað á fundi sínum í dag að veita hópi starfsmanna sinna kaupréttarsamninga í samræmi við starfskjarastefnu félagsins sem samþykkt var á aðalfundi Marel þann 3. mars 2010. Í tilkynningu segir að heildarfjöldi hluta sem veittir eru kaupréttir að, samkvæmt samningum þessum, eru samtals 18.200.000. Kaupréttarsamningunum er ætlað að samtvinna hagsmuni starfsmanna og félagsins til lengri tíma. Hluti af samningum eru við meðlimi framkvæmdastjórnar félagsins, þá Theo Hoen, forstjóra, Erik Kaman, fjármálastjóra og Sigstein Grétarsson, forstjóra Marel á Íslandi, og veitir þeim kauprétt að hlutum sem greinir hér að neðan (auk heildarfjölda hluta í eigu framangreindra aðila og aðila sem eru fjárhagslega tengdir þeim): Theo Hoen Nýr kaupréttur: 350.000 Eldri ónýttir kaupréttir: 2.000.000 Bein eign að nafnverði: 1.500.000 Eign fjárhagslegra tengdra aðila að nafnverði: 0 Erik Kaman Nýr kaupréttur: 350.000 Eldri ónýttir kaupréttir: 1.500.000 Bein eign að nafnverði: 1.675.000 Eign fjárhagslegra tengdra aðila að nafnverði: 0 Sigsteinn Grétarsson Nýr kaupréttur: 350.000. Eldri ónýttir kaupréttir: 1.000.000 Bein eign að nafnverði: 25.997 Eign fjárhagslegra tengdra aðila að nafnverði: 0 Samningarnir veita rétt til kaupa á hlutum í Marel hf. á genginu 0,525 evrur á hlut sem ákvarðað er af lokagengi hlutabréfa Marel hf. á NASDAQ OMX Iceland hf. í dag, 10. maí 2010, þ.e. 86,30 krónur á hlut umreiknað með miðgengi Seðlabanka Íslands fyrir EUR/ISK: 164,38. Gildistími samninganna er 5 ár, þeir munu taka gildi frá deginum í dag og falla úr gildi þann 9. maí 2015. Kaupréttir samkvæmt samningnum munu verða veittir í þrennu lagi, þannig að 50% af heildarkauprétti verða nýtanleg eftir 1. maí 2012, 25% verða nýtanleg eftir 1. maí 2013 og þau 25% sem eftir eru verða nýtanlega eftir 1. maí 2014. Kaupréttargengið mun hækka um 4% í fyrsta sinn 1. maí 2012 og síðan árlega eftir það. Nýti starfsmaður ekki að fullu kauprétt sinn samkvæmt framangreindu innan skilgreindra nýtingatímabila mun kauprétturinn, að því marki sem hann er ónýttur, sjálfkrafa færast yfir á næsta slíkt tímabil. Hafi starfsmaður ekki nýtt kauprétt sinn áður en samningurinn fellur úr gildi, falla veittir en ónýttir kaupréttir niður. Engir söluréttir eru til staðar eða fjármögnun tengd kaupréttarsamningunum. Skilyrði fyrir nýtingu kaupréttar er að viðkomandi sé í starfi hjá Marel samstæðunni (Marel hf. eða dótturfélögum í 100% eigu Marel hf.) á nýtingardegi. Heildarfjöldi hluta sem Marel hf. hefur nú veitt kauprétt að eru 43.815.000 eða sem nemur 3,7 milljörðum kr. samkvæmt fyrrgreindu gengi.
Mest lesið „Ég held bara að við sem þjóð séum ekki tilbúin í þetta“ Viðskipti innlent „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Viðskipti innlent Bein útsending: Verðlaunaafhending Stjórnverðlaunanna Viðskipti innlent Kennari kveður: „Allt gekk auðvitað út á rúntinn“ Atvinnulíf Skilur að fólk hafi áhyggjur af falli Bitcoin en er sjálfur rólegur Viðskipti erlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Viðskipti innlent Platar sjálfan sig á morgnana til að líða geðveikt fersk Atvinnulíf Hækka lánshæfiseinkunn Íslands í ljósi bættrar stöðu ríkisfjármála Viðskipti innlent Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Ég held bara að við sem þjóð séum ekki tilbúin í þetta“ Hækka lánshæfiseinkunn Íslands í ljósi bættrar stöðu ríkisfjármála Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Bein útsending: Verðlaunaafhending Stjórnverðlaunanna „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Lovísa til Orkuveitunnar „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Anna Lísa til Aton Seðlabankinn ósammála Daða Má Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Sjá meira