ÍLS hefur afskrifað 10,5 milljarða frá hruninu 2008 17. nóvember 2010 09:34
Í kjölfar fjármálahrunsins haustið 2008 hefur Íbúðalánasjóður (ÍLS) afskrifað 10,5 milljarða kr. vegna kaupa á skuldabréfum (8,5 milljarða kr.) og vaxtaskiptasamninga (2 milljarða kr.). Þetta kemur fram í svari félags- og tryggingarmálaráðherra við fyrirspurn Guðlaugs Þórs Þórðarsonar þingmanns Sjálfstæðisflokksins á Alþingi. Guðlaugur spurði um stöðu Íbúðalánasjóðs. Í svarinu segir að hvort tveggja, skuldabréfakaup og vaxtaskiptasamningar, var liður í lausafjár- og áhættustýringu sjóðsins og í samræmi við fjár- og áhættustýringarstefnu hans, en stefnan er samin út frá reglugerð um fjárhag og áhættustýringu Íbúðalánasjóðs. Þá kemur fram að samtals nam nettótap sjóðsins vegna peningamarkaðssjóða um 288 milljónum kr. að teknu tilliti til ávöxtunar. Brúttótap sjóðsins nam um 325 milljónum kr. Guðlaugur vildi m.a. vita hvort gert sé ráð fyrir frekari afskriftum af lánum og fjárfestingum Íbúðalánasjóðs? Ef svo er, hversu miklum og hvernig sundurliðast þær? Í svarinu segir að Íbúðalánasjóður er sem stendur virkasti lánveitandinn á innlendum fasteignamarkaði og hefur ákveðnum skyldum að gegna í þeim efnum. Í vaxtaálagi sjóðsins er gert ráð fyrir afskriftum vegna útlána. Eðli málsins samkvæmt er nær óhjákvæmilegt að einhverjar afskriftir verði á hverjum tíma en umfang þeirra ræðst jafnan af stöðu efnahagsmála hverju sinni. Gera má ráð fyrir að afskriftir vegna útlána verði í sögulegu hámarki næstu eitt til þrjú árin í samræmi við spár um framvindu efnahagsmála. Íbúðalánasjóður hefur í vinnslu viðskipta- og rekstraráætlun í tengslum við samkomulag stjórnvalda og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins sem skal skilað til Fjármálaeftirlitsins. Niðurstöður þeirrar vinnu munu liggja fyrir ekki seinna en í árslok. Í töflu sem fylgir með svarinu kemur fram að framlag í afskriftarsjóð hjá Íbúðalánasjóði hafa stóraukist á þessu og síðasta ári m.v. næstu átta ár þar á undan. Á fyrri part þessa árs hafa 1,5 milljarður kr. runnið í afskriftarsjóðinn og allt árið í fyrra var upphæðin 2,1 milljarður kr. Hinsvegar var upphæðin 807 milljónir kr. árið 2008 og 295 milljónir kr. árið 2007.
Mest lesið Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Viðskipti innlent „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Viðskipti innlent Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Viðskipti innlent Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Viðskipti innlent Bein útsending: Verðlaunaafhending Stjórnverðlaunanna Viðskipti innlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Seðlabankinn ósammála Daða Má Viðskipti innlent Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Viðskipti innlent „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Bein útsending: Verðlaunaafhending Stjórnverðlaunanna „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Lovísa til Orkuveitunnar „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Anna Lísa til Aton Seðlabankinn ósammála Daða Má Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Sjá meira