Ný gosdrykkjarverksmiðja formlega opnuð á morgun 6. desember 2010 11:04
Á morgun, þriðjudag, mun Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra, opna formlega Gosverksmiðjuna Klett, nýja drykkjar- og átöppunarverksmiðju. Í tilkynningu segir að við stofnun og uppsetningu verksmiðjunnar voru lögð til grundvallar gömul og góð íslensk gildi eins og nýtni og sjálfbærni í bland við kröfur samtímans um gagnsæi og upplýsingar til neytenda. Stofnendur leituðu í smiðju íslenskra hönnuða, hugvitsmanna og ýmissa sérfræðinga sem allir lögðu sitt að mörkum til að taka þátt í mótun íslensks fyrirtækis. Sögu Gosverksmiðjunnar Kletts má rekja til ársins 2009. Nokkrir einstaklingar voru að flytja heim til Íslands og leituðu leiða til að leggja sitt af mörkum við uppbyggingu atvinnulífsins. Þeir höfðu starfað erlendis um árabil, á ýmsum sviðum, meðal annars við gosframleiðslu. Hugmyndir um sjálfbærni og eflingu íslensks atvinnulífs var þeim ofarlega í huga. Alls hafa um og yfir 100 manns komið að uppbyggingu verksmiðjunnar á einn eða annan máta. Í dag eru 25 aðilar sem eiga verksmiðjuna og eru meðal þeirra helstu starfsmenn, ásamt vinum og fjölskyldum. Í þeim hóp er enginn fagfjárfestir og enginn þekktur fjárfestir. Við uppbyggingu verksmiðjunnar var forðast að taka lán og horft í hverja krónu. Varan er eingöngu ætluð fyrir íslenskan markað. Hönnun og framsetning vörunnar er íslensk að öllu leiti, unnin innanhúss og valdar voru óhefðbundnar og óvenjulegar leiðir í þeim efnum. Miðinn skartar mynd- um af Íslendingum og texta úr íslenskum dægurlögum og bókmenntum. Tvær línur drykkjartegunda, Kletta GOS og Kletta VATN, með ýmsum bragðtegundum hafa þegar litið dagsins ljós. Á næstu mánuðum munu svo fljótlega bætast við fleiri vörutegundir. Við þróun drykkjanna er haft hugfast að minnka innihald sykurmagns og nota einungis náttúruleg bragðefni, að því er segir í tilkynningunni.
Mest lesið „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Viðskipti innlent Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Viðskipti innlent Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Viðskipti innlent Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Viðskipti erlent Seðlabankinn ósammála Daða Má Viðskipti innlent Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Viðskipti innlent „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Lovísa til Orkuveitunnar „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Anna Lísa til Aton Seðlabankinn ósammála Daða Má Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Sjá meira