Skuldatryggingaálag Íslands helst nokkuð stöðugt 8. október 2010 12:22
Skuldatryggingaálag á evruskuldir Ríkissjóðs Íslands er enn nokkuð stöðugt líkt og upp á síðkastið. Í lok dags í gær stóð álagið í 306 punktum (3,06%) samkvæmt gögnum úr Bloomberg-gagnaveitunni sem er á svipuðu róli og það hefur verið síðustu mánuði. Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Þar segir að á síðustu dögum hefur meðaláhættuálag á meðal þróaðra (vestrænna) ríkja Evrópu verið að lækka nokkuð og stóð það í lok dags í gær í 172 punktum. Um miðja síðustu viku var álagið komið upp í 183 punkta og eins og kunnugt er mátti rekja þá hækkun m.a. til neikvæðra fregna af Írlandi sem hefur verið gagnrýnt mikið vegna aðkomu írska ríkisins að bankakerfinu. Skuldatryggingaálag á írska ríkið stóð í gær í 448 punktum en í byrjun síðustu viku var það komið upp í 490 punkta. Þessi lækkun álagsins stingur þó í stúf við þróun lánshæfiseinkunna Írlands á sama tíma, en um miðja þessa viku lækkaði matsfyrirtækið Fitch lánshæfiseinkunn þess fyrir langtímaskuldabindingar úr AA- í A+ og eru einkunnir áfram á neikvæðum horfum. Í tilkynningu matsfyrirtækisins er þessi lækkun sögð endurspegla óvenju mikinn kostnað, og meiri en vænst var, við að bjarga bankakerfi landsins. Af þeim vestrænum ríkjum Evrópu sem seldar eru skuldatryggingar fyrir er skuldatryggingaálagið enn hæst á Grikkland en þó virðist það hafa mjakast nokkuð niður á við undanfarið. Þannig stóð álagið á Grikkland í gær í 750 punktum en það var yfir 800 punktum í síðustu viku. Jafnframt er skuldatryggingaálagið á Ísland (306 punktar) enn hið fjórða hæsta, en í öðru og þriðja sæti í þessari upptalningu eru Írland (448 punktar) og svo Portúgal (409 punktar). Skuldatryggingarálagið á Spán (226 punktar) er í fimmta sæti á þessum lista og svo í sjötta sæti kemur álagið á Ítalíu (192 punktar).
Mest lesið Hækka lánshæfiseinkunn Íslands í ljósi bættrar stöðu ríkisfjármála Viðskipti innlent Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Viðskipti innlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Viðskipti innlent Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Viðskipti innlent „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Viðskipti innlent Stærsti Ímarkdagurinn í 40 ár: Alþjóðlegar stjörnur markaðsmála mæta Samstarf Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Viðskipti innlent Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hækka lánshæfiseinkunn Íslands í ljósi bættrar stöðu ríkisfjármála Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Bein útsending: Verðlaunaafhending Stjórnverðlaunanna „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Lovísa til Orkuveitunnar „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Anna Lísa til Aton Seðlabankinn ósammála Daða Má Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Sjá meira