Fáir lífeyrissjóðir jafn vel fjármagnaðir og þeir íslensku Hafsteinn Hauksson skrifar 14. júlí 2010 11:59
Efnahags- og framfarastofnunin segir íslenska lífeyrissjóðakerfið vera eitt af örfáum sem hafa náð sér að fullu eftir efnahagshrunið. Aðeins hollenskir lífeyrissjóðir séu betur fjármagnaðir. Efnahags- og framfarastofnunin OECD birti í gær skýrslu um lífeyrissjóði aðildarríkja fyrir júlímánuð. Þar segir að áhrif heimskreppunnar á bæði einkarekna og opinbera lífeyrissjóði sé enn greinilegt og fjárfestingatap ársins 2008 hafi ekki skilað sér að fullu, þrátt fyrir hægfara bata á verðbréfamörkuðum. Tapið nam alls um 3500 milljörðum bandaríkjadala, andvirði um 432 þúsund milljarða króna, en það hefur skilað sér aftur að tæpum helmingi eftir að markaðir tóku við sér. Stofnunin nefnir þó örfáar undantekningar, þar sem staða lífeyrissjóðanna var betri í lok árs 2009 en hún var 2007. Ein þeirra er Ísland, sem OECD segir að hafi náð sér fullkomlega af tapi lífeyrissjóðanna á árinu 2008. Eignavirði lífeyrissjóða hér hafi verið um þremur og hálfu prósentu hærra undir lok árs 2009 en það var 2007. Í skýrslunni eru eignir lífeyrissjóða aðildarríkjanna jafnframt bornar saman við landsframleiðslu til að meta fjármögnun þeirra. Þar er Ísland langt yfir meðaltali, en hér nema eignir þeirra um einni landsframleiðslu og fimmtungi betur. Vegið meðaltal er hins vegar um tveir þriðju landsframleiðslu. Aðeins Holland er með hærra hlutfall en Ísland, eða tæp 130 prósent landsframleiðslu.
Mest lesið Bein útsending: Verðlaunaafhending Stjórnverðlaunanna Viðskipti innlent Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Viðskipti innlent Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Viðskipti innlent Stærsti Ímarkdagurinn í 40 ár: Alþjóðlegar stjörnur markaðsmála mæta Samstarf Skilur að fólk hafi áhyggjur af falli Bitcoin en er sjálfur rólegur Viðskipti erlent Platar sjálfan sig á morgnana til að líða geðveikt fersk Atvinnulíf EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Viðskipti innlent Svara tollum Trumps: „Við munum ekki standa aðgerðarlausir hjá“ Viðskipti erlent Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hækka lánshæfiseinkunn Íslands í ljósi bættrar stöðu ríkisfjármála Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Bein útsending: Verðlaunaafhending Stjórnverðlaunanna „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Lovísa til Orkuveitunnar „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Anna Lísa til Aton Seðlabankinn ósammála Daða Má Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Sjá meira