Ákvörðun Jóns skiptir sköpum fyrir nokkur bæjarfélög 6. nóvember 2010 12:22 Teitur Björn Einarsson, stjórnarformaður útgerðarfélagsins Eyrarodda á Flateyri.
Ákvörðun sjávarútvegsráðherra um að auka kvóta til stuðnings minni byggðarlögum gæti skipt sköpum fyrir nokkur bæjarfélög. Á Flateyri verða uppsagnir í útgerð hugsanlega dregnar til baka. Jón Bjarnason sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra undirritaði í gær tvær reglugerðir sem fela í sér aukningu á kvóta til stuðnings minni byggðarlögum á yfirstandandi fiskveiðiári. Kvótinn til minni byggðarlaga er aukinn úr 150 tonnum í 300 tonn. Breytingin er almenn og kemur öllum minni byggðarlögum sem falla undir skilyrðin til góða. Þau bæjarfélög sem gætu notið góðs af þessu eru m.a Flateyri, Vopnafjörður, Stöðvarfjörður, Ólafsvík, Árskógssandur og Grundarfjörður. Í samræmi við þetta hefur verið ákveðið að auka heildarkvóta fiskveiðiársins um 460 þorskígildistonn og rennur sú aukning alfarið til aðgerðarinnar. Það aflamark sem úthlutað er sérstaklega til stuðnings byggðarlögum samtals 4345 tonn, en þar af 3445 tonn til minni byggðarlaga sem lent hafa í vanda vegna samdráttar í sjávarútvegi. Teitur Björn Einarsson, stjórnarformaður útgerðarfélagsins Eyrarodda á Flateyri, segir að þessi aukning gæti orðið til þess að uppsagnir hjá fyrirtækinu verði dregnar til baka. „Það er óskandi að það verður niðurstaðan." „Þetta er liður í því að ná fótfestu svo hægt sé að halda áfram með það verkefni sem við erum að fást við á Flateyri," segir Teitur Björn.
Mest lesið Hækka lánshæfiseinkunn Íslands í ljósi bættrar stöðu ríkisfjármála Viðskipti innlent Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Viðskipti innlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Viðskipti innlent Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Viðskipti innlent Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Viðskipti innlent „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Viðskipti innlent Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Viðskipti innlent Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hækka lánshæfiseinkunn Íslands í ljósi bættrar stöðu ríkisfjármála Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Bein útsending: Verðlaunaafhending Stjórnverðlaunanna „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Lovísa til Orkuveitunnar „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Anna Lísa til Aton Seðlabankinn ósammála Daða Má Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Sjá meira