Þegar stjarna á ekki við Jónas Sen skrifar 28. desember 2010 10:28 Þótt margt hafi verið flott í tónlistarlífinu á árinu tekur maður fyrst og fremst eftir því sem er frumlegt. Oft skortir hugmyndaauðgi í framsetningu klassískrar tónlistar. Síðustu tónleikar Kammermúsíkklúbbsins sem ég skrifaði um voru til fyrirmyndar að þessu leyti. Tónleikagestum var boðið upp á alveg nýja útgáfu af Goldberg-tilbrigðum Bachs. Sem heppnuðust svona ljómandi vel. Þarna var þekkt tónsmíð, sem venjulega er spiluð á píanó eða sembal, flutt af strengjatríói. Og maður sá hana í alveg nýju ljósi. Tónleikar Sinfóníunnar hafa líka margir verið stórglæsilegir á árinu, þrátt fyrir að hafa ekki alltaf verið mjög frumlegir. Á Listahátíð söng einsöng með hljómsveitinni sá klassíski söngvari sem hefur unnið hvað glæstustu sigrana erlendis. Það er Kristinn Sigmundsson. Kristinn er frábær söngvari, röddin á tónleikunum var mögnuð og túlkunin sannfærandi. Garðar Cortes stjórnaði tónleikunum með Kristni, en venjulega hefur Rumon Gamba stjórnað. Hann hætti sem aðalstjórnandi í vor. Ég er hálf feginn að það er enginn fastur stjórnandi núna. Í haust hefur dagskráin einmitt verið óvanalega spennandi. Verkin eru kunnugleg en samt veit maður aldrei á hverju er von. Það eru alltaf nýir stjórnendur! Stór tímamót fram undan Harpa, tónlistarhúsið langþráða, verður opnuð á næsta ári. Sinfónían hefur þurft að dúsa í Háskólabíói í allt of langan tíma. Í Háskólabíói er hljómburðurinn svo afleitur að ekki er hægt að njóta leiks Sinfóníunnar nema í fremri helmingi salarins, helst fyrir miðju. Vonandi verður hljómburðurinn í Hörpu ekki bara betri, heldur miklu betri. Það verða stór tímamót þegar Sinfónían flytur inn í Hörpu. En það voru líka ákveðin tímamót í ár, því hljómsveitin varð sextug í mars. Ég verð að viðurkenna að ég sé pínulítið eftir grein sem ég skrifaði um afmælistónleikana. Á tónleikunum var frumflutt tónsmíð eftir Hafliða Hallgrímsson sem heitir Norðurdjúp. Mér fannst verkið leiðinlegt og líkti því við allt of langa ræðu um IceSave. Eftir á að hyggja var það óheppileg líking. Ekkert er eins leiðinlegt og IceSave. Verk Hafliða var í sjálfu sér ágætt, haganlega sett saman og framvindan sannfærandi. Það var bara dálítið þunglyndislegt og átti einhvern veginn ekki við í afmælisveislu. Ég er samt mjög hrifinn af Hafliða sem tónskáldi. Passían eftir hann er eitt besta verk íslenskra tónbókmennta. Og Örsögur, sem komu út á geisladiski í vetur, eru einfaldlega frábærar. Þetta eru sögur úr Sovétríkjunum sálugu. Þær eru fyndnar en samt er í þeim óhugnanlegur undirtónn sem Hafliði kemur til skila á meistaralegan hátt. Geisladiskar og tónleikar eru auðvitað ekki einu hliðarnar á tónlistarmenningunni. Nokkrir frábærir tónlistarþættir eru á RÚV. Þeir hafa svo sannarlega auðgað tónlistina að undanförnu. Útsendingarnar frá Sinfóníutónleikum eru óaðfinnanlegar. Og í sérstöku uppáhaldi hjá mér eru tónlistarþættir Höllu Steinunnar Stefánsdóttur, Girni, grúsk og gloríur. Þeir fjalla um gamla meistara og gömul tónverk, og hvernig þau hljómuðu þegar þau heyrðust fyrst. Þetta eru merkilega líflegir og fróðlegir þættir. Þeir fengju fimm stjörnur ef ég mætti ráða. Stjörnustríð En talandi um það, þarf alltaf að gefa stjörnur? Stjörnurnar eru vissulega þægilegar - lesandinn sér strax niðurstöðu gagnrýnandans. Gallinn er sá að stundum er ekki hægt að komast að slíkri niðurstöðu. Listin er í eðli sínu margþætt, jafnvel óræð, enda fjallar tónlistin oft um það sem ekki er hægt að koma orðum að. Með því að gefa tónlist stjörnur er verið að segja að hægt sé skilgreina tónlist með örfáum orðum, setja hana í glas með merkimiða á. Vissulega er sumt einfaldlega gott og sumt er frábært. En annað er flóknara og það passar illa að gefa því stjörnur. Í dómi sem ég skrifaði um ævistarf Kristjáns Jóhannssonar, upptökur sem spanna allan hans feril, gaf ég bara eina stjörnu. Dómurinn hefur valdið nokkru fjaðrafoki. Dylgjað hefur verið um mig að ég hafi skrifað dóminn af rætni. Sem er ekki rétt. Ég vil benda lesendum á að skrifa "Kristjan Johannsson review" í Google. Sjáið t.d. dóm í New York Times frá 24. febrúar 1997. Dómarnir eru margir fleiri og frá mismunandi tímabilum, og niðurstaðan er yfirleitt sú sama. Kristján hefur öfluga rödd, en hann er hrjúfur og einhæfur túlkandi. Þannig virðist hann alltaf hafa verið. Mér er algerlega fyrirmunað að vera óheiðarlegur í skrifum. En til að vera fyllilega sanngjarn þá get ég fallist á að tónninn í grein minni hafi verið óþarflega hörkulegur. Og það voru sennilega mistök að gefa plötunni bara eina stjörnu. Heilt æviverk verður ekki afgreitt með einni stjörnu, og ekki heldur með fimm stjörnum. Í þessu tilviki hefði verið betra að hreinlega sleppa stjörnugjöfinni. Kannski væri ekki svo galið að fella alveg niður stjörnugjöfina í listgagnrýni á árinu sem nú er að ganga í garð. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Jónas Sen Mest lesið Hvað er í pakkanum? Hannes Lúðvíksson Skoðun Þeir seldu áhættuna sem tækifæri — og sendu þjóðinni reikninginn Baldur Pétursson Skoðun Einstaklingurinn og fullveldið Signý Sigurðardóttir Skoðun Traust á lögmönnum er ekki einkamál lögmanna Vilbert Gústafsson Skoðun Heimilislæknar og reglugerðardrög Alma D. Möller Skoðun Nýsköpunin sem hverfur inn í skýið Bogi Ragnarsson Skoðun Þegar kaffið rennur upp á við í Undralandi íslenskrar orðræðu Sigurður Sigurðsson Skoðun Upplýsingar eru ekki ógn, þær eru forsenda Halldór Jörgen Olesen Skoðun Skilvirk núna en ekki ef við göngum í ESB Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Áhugaverðar ákvarðanir Sigurður Ingi Friðleifsson Skoðun Skoðun Skoðun Hvað er í pakkanum? Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Nýsköpunin sem hverfur inn í skýið Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Þegar kaffið rennur upp á við í Undralandi íslenskrar orðræðu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Þeir seldu áhættuna sem tækifæri — og sendu þjóðinni reikninginn Baldur Pétursson skrifar Skoðun Traust á lögmönnum er ekki einkamál lögmanna Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Upplýsingar eru ekki ógn, þær eru forsenda Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Heimilislæknar og reglugerðardrög Alma D. Möller skrifar Skoðun Einstaklingurinn og fullveldið Signý Sigurðardóttir skrifar Skoðun Skilvirk núna en ekki ef við göngum í ESB Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Sterkari skólar fyrir öll börn Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Ég hef líka trú á Ögmundi Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun „Áður en við segjum já eða nei“ Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Þjóðarmorð? Finnur Th. Eiríksson skrifar Skoðun Breyttar áherslur í borgarskipulagi Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Hernaðarbrölt Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Það sem við gefum áfram Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Ríkið má ekki skorast undan Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Gjaldtaka hins opinbera þarf að vera fyrirsjáanleg Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin 250 ára: frelsi, stjórnarskrá og lærdómur fyrir Ísland Júlíus Valsson skrifar Skoðun Getum við gert enn betur? Já í ágúst Elvar Örn Arason skrifar Skoðun Húsnæðiskaupmáttur Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Hef trú á Arnari Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Börn eiga ekki að bíða meðan kerfið rífst Guðmundur Ármann skrifar Skoðun Júlí - mánuður fötlunarstolts Freyja Haraldsdóttir ,Jana Birta Björnsdóttir skrifar Skoðun Níutíu ár af sameiginlegu öryggi Ragnar Þór Ingólfsson skrifar Skoðun Var þetta sýndarsamráð? Sigurborg Kr. Hannesdóttir skrifar Skoðun Hvað vitum við í ágúst? Staðreyndir og möguleikar Íslands Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Töpum við fullveldinu ef við göngum í ESB? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Samningurinn sem allir hafa lesið skrifar Skoðun UT-mál Reykjavíkurborgar Haukur Arnþórsson skrifar Sjá meira