Haukar fóru létt með Skallagrím í toppslagnum - KFÍ í toppsætinu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 8. janúar 2010 20:20 Landon Quick lék vel í sínum fyrsta leik með Haukum. Mynd/Heimasíða Hauka
Haukar unnu öruggan 40 stiga sigur á Skallagrími, 105-65 í Borganesi í toppslag í 1. deild karla í körfubolta í kvöld. Liðin voru fyrir leikinn jöfn í 1. til 3. sæti deildarinnar og voru jafnframt þau einu sem höfðu aðeins tapað einum leik í deildinni. Skallagrímsmenn höfðu unnið átta síðustu leiki sína eða alla leiki síðan þeir töpuðu 71-76 fyrir Haukum í fyrstu umferð deildarinnar á Ásvöllum en hann fór fram í október. Bandaríkjamaðurinn Landon Quick lék sinn fyrsta leik með Haukum og það á móti sínum gömlu félögum í Haukum. Quick var með 24 stig og 6 stoðsendingar í leiknum í kvöld. Helgi Björn Einarsson skoraði 15 stig og tók 11 fráköst fyrir Hauka en hjá Skallagrími var Silver Laku stigahæstur með 24 stig. Haukar unnu þarna sjöunda leik sinn í röð en eina tap liðsins var á móti KFÍ á Ísafirði. Ísafjarðarliðið er í toppsæti deildarinnar á þeim sigri en Haukar og KFÍ eru jöfn að stigum eftir 74-68 útisigur KFÍ á Þór Akureyri í kvöld. Craig Schoen var með 28 stig og 12 stoðsendingar fyrir KFÍ en hjá Þórsliðinu er Óðinn Ásgeirsson farinn að spila aftur og hann var með 22 stig, 9 fráköst og 6 stoðsendingar í kvöld. Valsmenn eru í fjórða sæti deildarinnar eftir sjötta sigur sinn í röð. Valur vann 76-63 sigur á Hrunamönnum á Flúðum. Byron Davis skoraði 25 stig fyrir Valsliðið í kvöld og Benedikt Pálsson kom honum næstur með 13 stig.
Íslenski körfuboltinn Mest lesið Liverpool má ekki taka á móti Real Madrid í Meistaradeildinni Fótbolti Ótrúlega ósáttur við Val: „Hafa skilið mann eftir einan í myrkrinu“ Handbolti Dönsk landsliðsstjarna dæmd Fótbolti Hundrað metra met Bolt „fallið“ Sport Golfáhrifavaldar í klandri vegna umdeildrar auglýsingar Golf Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Enski boltinn Heiðursmannasamkomulag var svikið: „Kom okkur á óvart“ Handbolti Raheem Sterling ákærður Enski boltinn Guðjón Valur framlengir við Gummersbach Handbolti Uppgjörið: Apollon - FH 0-2 | Flottur sigur í sögulegum leik hjá Fimleikafélaginu Fótbolti Fleiri fréttir „Gripur sem safnarar bíða alla ævi eftir“ Reese rífur í sig metin Haukar fá risavaxinn liðsauka Fyrrverandi NBA leikmanni hent út úr húsi á kvennaleik Tindastóll tekur slaginn aftur í Evrópukeppni Kynlífsleikföngum aftur kastað inn á völlinn ÍR semur við sænsk-bandarískan bakvörð Strákarnir réðu ekki við Finnana Ísland tapaði fyrir Portúgal „Þurfum að gera skítaverkin betur en andstæðingurinn“ Sextán ára nýliði í landsliðinu: „Við erum að velja þær af því þær eru svo góðar“ ÍR semur við bandarískan bakvörð Íslenskan öll að koma til hjá nýliða landsliðsins „Takk fyrir mig körfubolti“ Pablo Bertone aftur í Val Keflavík heldur áfram að styrkja sig Hópurinn klár fyrir næsta skref að HM Berglind Katla valin í A-landsliðið aðeins 16 ára Yfir milljón í boði á nýrri íslenskri mótaröð Keflavík bætir við sig Bandaríkjamanni Krakkarnir bjuggu til sögulegt sumar fyrir íslenskan körfubolta Stjarnan fær 208 sentímetra miðherja Strákarnir sekúndum frá gullinu eftir frábæra frammistöðu „Hann var fyndinn, hann var hávær og hann var alltaf að grínast“ Strákarnir í úrslitaleikinn og upp í A-deild eftir risasigur Sló tvo leikmenn í andlitið og lét vísa áhorfanda út „Hinn fullkomni keppnismaður“ leggur skóna á hilluna Keyrðu yfir Svartfellinga undir lokin og undanúrslitin bíða Gætu rekið íslenska ríkissjóðinn fyrir kaupverðið á Lakers Sturla Böðvarsson til KR Sjá meira