Þingið ræðir söluna á Vestia Jón Hákon Halldórsson skrifar 6. september 2010 23:37 Óli Björn Kárason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, er málshefjandi í umræðunni.
Utandagskrárumræða um þátttöku lífeyrissjóðanna í endurreisn atvinnulífsins fer fram á Alþingi á morgun. Óli Björn Kárason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, er málshefjandi en til andsvara er fjármálaráðherra. „Tilefnið er auðvitað augljóst. Það eru kaup Framtakssjóðs lífeyrissjóðanna á eignarhaldsfélagi Landsbankans, Vestia, og fyrirtækjum sem eru í eigu Vestia," sagði Óli Björn í samtali við Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag. Óli Björn segir að Landsbankinn hafi brotið eigin starfsreglur þegar að Vesta var selt Framtakssjóðnum. Þar hafi átt að fylgja ákveðnum vinnureglum um gegnsæi og opið ferli við sölu fyrirtækja, eins og hafi verið ákveðið fljótlega eftir að Nýi Landsbankinn tók til starfa. Óli Björn bendir jafnframt á annað mál sem að hann telur að skipti ekki síður máli. „Það er hvort og þá með hvaða hætti við viljum að lífeyrissjóðirnir taki þátt í atvinnulífinu. Að þeir taki bara hreinlega yfir mörg af stærri fyrirtækjunum og reki þau í samkeppni við aðra, nýti iðgjöld sjóðsfélaga sinna til þess að stunda mjög áhættusama starfsemi, sem er bein fjárfesting í fyrirtækjunum," segir Óli Björn. Óli Björn telur að flestir séu þeirrar skoðunar að lífeyrissjóðirnir leiki ákveðinn þátt í endurreisn atvinnulífsins. „En hugsanlega væri betra að þeir legðu til nýtt fé en taki ekki yfir fyrirtæki með þeim hætti sem þeir eru að gera," segir Óli Björn. Margir lífeyrissjóðir sem eigi aðild að Framtakssjóðnum hafi þurft að skera niður greiðslur til lífeyrisþega vegna þess að sjóðirnir hafi tapað á hruninu og tapað á fjárfestingum í hlutabréfum í fyrirtækjum. Utandagskrárumræðan hefst á Alþingi klukkan ellefu.
Mest lesið Skilur að fólk hafi áhyggjur af falli Bitcoin en er sjálfur rólegur Viðskipti erlent Platar sjálfan sig á morgnana til að líða geðveikt fersk Atvinnulíf Hækka lánshæfiseinkunn Íslands í ljósi bættrar stöðu ríkisfjármála Viðskipti innlent Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Viðskipti innlent Stærsti Ímarkdagurinn í 40 ár: Alþjóðlegar stjörnur markaðsmála mæta Samstarf Bein útsending: Verðlaunaafhending Stjórnverðlaunanna Viðskipti innlent Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hækka lánshæfiseinkunn Íslands í ljósi bættrar stöðu ríkisfjármála Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Bein útsending: Verðlaunaafhending Stjórnverðlaunanna „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Lovísa til Orkuveitunnar „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Anna Lísa til Aton Seðlabankinn ósammála Daða Má Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Sjá meira