Tónlist

Brimbrettasveitin Bárujárn vann Þorskastríðið

Hljómsveitin Bárujárn er sigurvegari hljómsveitakeppninnar Þorskastríðið.
Hljómsveitin Bárujárn er sigurvegari hljómsveitakeppninnar Þorskastríðið.

Sigurvegari í hljómsveitakeppninni Þorskastríðið 2010 er brimbrettasveitin Bárujárn. Hún hlýtur í verðlaun hljóðverstíma til að fullvinna þrjú lög, ársbirgðir af lýsi og einnig verður henni flogið til Færeyja þar sem hún spilar á G-festival 15.-17. júlí.

„Við erum ekki vön að fá eitthvað upp í hendurnar. Við höfum yfirleitt þurft að gera þetta sjálf," segir trymbillinn Leifur Ýmir Eyjólfsson. „Þetta er svolítið óvænt en það er alltaf gaman að vinna." Alls 92 flytjendur sendu inn lög í Þorskastríðið í ár. Skilyrðið var að sungið yrði á íslensku.

Bárujárn var stofnuð haustið 2008 í Reykjavík. Auk Leifs Ýmis eru í hljómsveitinni Oddur S. Báruson bassaleikari, Hekla Magnúsdóttir, sem leikur á þeramín, og Sindri Freyr Steinsson sem syngur og spilar á gítar. Hljómsveitin spilar hressilegt brimbrettarokk með drungalegum undirtón.

„Við leggjum upp með „sörf" en reynum að toga það í hinar og þessar áttir. Til að byrja með var þetta mikið þyngra en við höfum verið að slípa þetta til," segir Leifur. Hann vonast til að fyrsta plata sveitarinnar líti dagsins ljós á þessu ári og koma þá hljóðverstímarnir frá Cod Music, sem stendur á bak við Þorskastríðið ásamt Rás 2, að góðum notum. - fb

Á Myspace-síðu Bárujárns má hlusta á nokkur lög eftir hljómsveitina.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.