Árleg raunávöxtum lífeyrissjóða 3,1% frá árinu 1997 15. nóvember 2010 11:06
Íslenskir lífeyrissjóðir eru með um 3,1% árlega raunávöxtun frá árinu 1997 á meðan markaðsraunvextir hafa verið um 4,5%. Þetta kemur fram í áliti frá hinu óháða og sérhæfða fjármálafyrirtæki GAMMA þar sem fjallað er um ávöxtunnarmarkmið lífeyrissjóðanna. Réttindaávinnsla iðgjaldagreiðenda, þ.e. skuldbindingar lífeyrissjóðs, felur í sér ávöxtunarmarkmið á bilinu 3-4% raunvextir, sem lög frá 1997 setja sem lágmarkstryggingavernd. Fram kemur að langtíma raunvextir í dag eru um 3,4% á sama tíma og langtímaraunvextir í G7 ríkjum eru 0,5-1,0%, að Ítalíu undanskilinni (2,2%) Þegar markaðsvextir eru lægri en ávöxtunarviðmið sjóðs er vísvitandi verið að vanmeta skuldbindingar sjóðsins sem getur leitt til þess að innbyggður halli sjóðsins sé falinn og hlaði upp á sig með tíma. Útgreidd réttindi verða of há og sjóðsfélögum er mismunað. Bandarískt lífeyrissjóðskerfi liggur undir harðri gagnrýni vegna bágrar stöðu en þeir hafa lofað upp undir 8% nafnávöxtun á meðan markaðsvextir eru um 3-4%. Eftir því sem ávöxtunarloforð er hærra, fegrar það tryggingafræðilega stöðu sjóðsins, skuldbindingar eru næmari fyrir breyttri ávöxtunarkröfu en eignir, og þær lækka eftir því sem ávöxtunarloforðið er hærra. Lög og reglugerðir eiga að ýta undir fjárfestingar í sem áhættuminnstum fjárfestingum, að teknu tilliti til skuldbindinga, en ekki auka áhættusækni. Eftir því sem áhættusækni lífeyrissjóðanna eykst, aukast sveiflur í ávöxtun þeirra sem leiðir til oflofaðra og ofgreiddra réttinda á uppgangstímum og til sársaukafyllri niðurskurðs en ella í niðursveiflu líkt og nú. Gott lífeyrissjóðakerfi á Íslandi má gera betra með hnitmiðuðum breytingum, að því er segir í áliti GAMMA.
Mest lesið Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Viðskipti innlent „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Viðskipti innlent Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Viðskipti innlent Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Viðskipti innlent Bein útsending: Verðlaunaafhending Stjórnverðlaunanna Viðskipti innlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Seðlabankinn ósammála Daða Má Viðskipti innlent Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Viðskipti innlent „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Bein útsending: Verðlaunaafhending Stjórnverðlaunanna „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Lovísa til Orkuveitunnar „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Anna Lísa til Aton Seðlabankinn ósammála Daða Má Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Sjá meira