Óljóst hvort laun seðlabankastjóra hafi lækkað Hafsteinn Hauksson skrifar 8. júní 2010 12:36
Varaformaður bankaráðs Seðlabankans segir ekki rétt að bankaráð hafi ákveðið að hækka laun seðlabankastjóra umfram úrskurð kjararáðs. Hann getur þó ekki tekið af tvímæli um að úrskurður kjararáðs sé kominn til framkvæmda. Sigurður Kári Kristjánsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, sakaði í gær fulltrúa stjórnarflokkanna í bankaráði um að hafa úrskurð kjararáðs um launalækkun Seðlabankastjóra að engu og hyggðist greiða honum hærri laun en úrskurðurinn segir til um. Þessa fullyrðingu hafa tveir fulltrúar í bankaráði Seðlabankans hrakið og segja engar ákvarðanir hafa verið teknar um að hækka laun seðlabankastjóra umfram úrskurðinn. Ragnar Arnalds, varaformaður ráðsins, tekur þó ekki af öll tvímæli um að úrskurður kjararáðs sé kominn til framkvæmda. Spurður hvort Seðlabankastjóri fái greitt samkvæmt úrskurði kjararáðs í dag segist Ragnar ekki þekkja það í smáatriðum. "Það var ljóst að þetta kæmi til framkvæmda eftir einhverjum ákveðnum reglum og þú verður að spyrja einhvern annan um það hvað hann fær greitt og frá hvaða tíma. Ég þekki það bara ekki persónulega" segir Ragnar. "Það eina sem snýr að okkur beint í bankaráðinu er hvort við myndum taka viðbótarákvörðun um ðað hækka frá því sem kjararáðið hafði ákveðið. Þá ákvörðun tókum við ekki, það er aðalatriðið. Hitt, hvenær ákvörðun kjararáðsins kemur formlega til framkvæmda, er tæknilegt atriði sem ég þekki ekki." Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra segir þó að það sé á ábyrgð bankaráðs að framfylgja úrskurði kjararáðs í samræmi við aðra þætti. "Síðan er það í höndum bankaráðs seðlabankans að láta hann [úrskurð kjararáðs] koma til framkvæmda eftir því sem lög og reglur og ráðningarsamningar mæla fyrir um. Það eiga að sjálfsögðu allir að framfylgja lögum og niðurstöðu kjararáðs, en það er væntanlega skoðað í hverju tilviki hvernig það stendur af sér gagnvart réttindum viðkomandi aðila og þeim samningum sem fyrir lágu þegar úrskurðurinn féll. Maður treystir því að það sé gert í samræmi við lög og reglur."
Mest lesið „Ég held bara að við sem þjóð séum ekki tilbúin í þetta“ Viðskipti innlent Kennari kveður: „Allt gekk auðvitað út á rúntinn“ Atvinnulíf Skilur að fólk hafi áhyggjur af falli Bitcoin en er sjálfur rólegur Viðskipti erlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Viðskipti innlent Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Viðskipti innlent Bein útsending: Verðlaunaafhending Stjórnverðlaunanna Viðskipti innlent Platar sjálfan sig á morgnana til að líða geðveikt fersk Atvinnulíf Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Viðskipti innlent Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Ég held bara að við sem þjóð séum ekki tilbúin í þetta“ Hækka lánshæfiseinkunn Íslands í ljósi bættrar stöðu ríkisfjármála Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Bein útsending: Verðlaunaafhending Stjórnverðlaunanna „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Lovísa til Orkuveitunnar „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Anna Lísa til Aton Seðlabankinn ósammála Daða Má Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Sjá meira