Yfirveðsett íbúðalán í bönkum nema 85 milljörðum 15. nóvember 2010 14:42 Lilja Ólafsdóttir stjórnarformaður og Gunnar Þ. Andersen forstjóri voru viðstödd ársfund Fjármálaeftirltisins í dag. Mynd/ Pjetur.
Um mitt ár 2010 voru útlán með veði í íbúðarhúsnæði hjá viðskiptabönkunum 261 milljarðar kr. og 42 milljarðar kr. hjá sparisjóðunum, eða samtals 303 milljarðar kr. Um 28% þessara lána eru með veðhlutfall sem er yfir 100% eða samtals ríflega 85 milljarðar kr. Þetta kemur fram í ársskýrslu Fjármálaeftirlitsins. Þar segir að hjá bönkunum nema þessi útlán 72,8% af eiginfjárgrunni, en neikvæð eiginfjárstaða nokkurra sparisjóða gerir erfitt um vik við slíkan útreikning hjá þeim í heild. Á sama tíma eru lán með veði í íbúðarhúsnæði hjá bönkunum 17,1% af lánum til viðskiptavina, en 19,7% hjá sparisjóðunum. Um 45% af heildarútlánum viðskiptabanka og stærstu sparisjóða eru með veði í íbúðarhúsnæði með veðhlutfall undir 70%, 19% slíkra lána er með veðhlutfallið 70 - 90% og 36% þeirra eru með veðhlutfall yfir 90% en þar af eru 28% með yfir 100% veðhlutfall. Í fjárhæðum talið eru 109,5 milljarðar kr. af lánum viðskiptabanka og sparisjóða með veðhlutfall yfir 90% en þar af 85,5 milljarða kr. með veðhlutfall yfir 100%. Það þarf ekki að koma á óvart að þessi hlutföll hafa öll skekkst verulega eftir hrun bankanna, en misserin þar á undan var algengt að um 10% af heildarútlánum viðskiptabankanna og stærstu sparisjóðanna með veði í íbúðarhúsnæði lentu í flokknum með veðhlutfall yfir 100%, samanborið við 28% nú. FME með töluverðar áhyggjur Mikilvægur þáttur í endurreisn bankanna er endurskipulagning á lánasöfnum þeirra. Ljóst er að þær áætlanir sem bankarnir settu sér í upphafi árs 2009 hafa ekki gengið eftir og gengur endurskipulagningin hægar en vonir stóðu til. Fjármálaeftirlitið hefur af þessu töluverðar áhyggjur og þar sem þetta er ein stærsta áhættan í rekstri fjármálafyrirtækjanna er mjög mikilvægt að hraða þessu ferli eins og kostur er. Stóru viðskiptabankarnir þrír hafa skilað inn til Fjármálaeftirlitsins lánasafnsskýrslum frá því í október 2009. Í þessum skýrslum er haldið utan um stöðu lánasafns bankanna og skiptingu safnsins eftir því hvort lán eru í vanskilum eða frystingu, í skilum eftir endurskipulagningu eða í skilum án endurskipulagningar. Hlutfall stærri fyrirtækjalána eykst Hvað varðar stærri fyrirtækjalán (yfir 100 milljóna kr. kröfuvirði) hefur hlutfall slíkra lána m.v. bókfært virði útlánaflokksins farið úr 5% frá október 2009 upp í 26% í ágúst 2010. Hvað varðar smærri fyrirtæki (undir 100 milljónir kr. kröfuvirði) hefur hlutfallið lækkað úr 13% niður í 10%. Hlutfall lána sem búið er að endurskipuleggja hjá einstaklingum með stærri lán (yfir 100 milljóna kr. kröfuvirði) hefur farið úr 6% upp í 14% og hvað varðar einstaklinga með minni lán hefur hlutfall endurskipulagðra lána farið úr 15% upp í 28%. Þrátt fyrir að bankarnir séu búnir að endurskipuleggja töluverðan hluta lánasafnsins hefur lánum í vanskilum eða frystingu ekki fækkað mikið. Það skýrist af því að á sama tíma og bankarnir voru að endurskipuleggja lánasöfn sín fækkaði þeim útlánum sem voru í skilum án endurskipulagningar.
Mest lesið Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Viðskipti innlent „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Viðskipti innlent Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Viðskipti innlent Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Viðskipti innlent Bein útsending: Verðlaunaafhending Stjórnverðlaunanna Viðskipti innlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Seðlabankinn ósammála Daða Má Viðskipti innlent Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Viðskipti innlent „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Bein útsending: Verðlaunaafhending Stjórnverðlaunanna „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Lovísa til Orkuveitunnar „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Anna Lísa til Aton Seðlabankinn ósammála Daða Má Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Sjá meira