Sigurjón sagðist vera undir þrýstingi frá eigendum Þorbjörn Þórðarson skrifar 9. desember 2010 21:33 Sigurjón Þ. Árnason. Hann mun hafa viðurkennt fyrir PwC að hafa verið undir þrýstingi frá eigendum Landsbankans.
Sigurjón Þ. Árnason var undir þrýstingi frá eigendum Landsbankans og kom það niður á starfsháttum og vinnubrögðum í starfi forstjóra, að því er fram kemur í skýrslu norska fyrirtækisins Lynx Advokatfirma, en fréttastofa hefur skýrsluna undir höndum. Skýrslan, sem er mikill áfellisdómur yfir stjórnendum Landsbankans og ytri endurskoðendum hans, PricewaterhouseCoopers, fjallar m.a um vinnuskjöl sem hefðu átt að hringja viðvörunarbjöllum við endurskoðun á ársreikningum bankans. Eins og fréttastofa hefur greint frá og komið hefur fram í öðrum miðlum voru endurskoðaðir ársreikningar bankans fyrir árið 2007 rangir og villandi. Fram kemur í skýrslunni og vitnað er til vinnuskjala PwC að Sigurjón Þ. Árnason, forstjóri, hafi sagt að öll lán yfir 500 milljónum króna, hafi verið sérstaklega metin af starfsmönnum og yfirmönnum bankans. Jafnframt hafi tryggingar að baki lánunum verið reiknaðar sérstaklega út í hvert og eitt sinn. Þau lán sem yfirmenn hafi talið að sérstök þörf hafi verið á að athuga frekar hafi verið sett á sérstakan athugunarlista eða á lista yfir varúðarafskriftir, þ.e lán sem rýrnað hefðu að verðmætum og talið var að myndu ekki innheimtast að fullu. Að lokum hafi forstjórar síðan yfirfarið þessa lista og því næst hafi þeir verið kynntir ytri endurskoðendum bankans, PwC. Samkvæmt skýrslunni kemur fram að PwC hafi gefið skýrlega til kynna að fyrirtækið hafi ekki verið í góðri stöðu til að meta viðskipti og stöðu stórra viðskiptavina Landsbankans. Þessu til viðbótar hafi Sigurjón viðurkennt fyrir PwC að hann hafi verið undir þrýstingi frá eigendum bankans, en stærstu hluthafar bankans voru félög Björgólfsfeðga. Jafnframt hafi Einar Harðarson, yfirmaður áhættustýringar Landsbankans, sagt að hann hafi viljað sjá meiri færslur á varúðarafskriftarreikning, þ.e reikning til að mæta áætluðu útlánatapi.
Tengdar fréttir Norska skýrslan: Villandi ársreikningar og falskur hagnaður Landsbankans Ársreikningur Landsbankans fyrir árið 2007 var rangur og villandi á margvíslegan hátt, hagnaður var falsaður og eigið fé var gróflega ofmetið, að því er fram kemur í skýrslu norska fyrirtækisins LYNX Advokatfirma, en fréttastofa hefur skýrsluna undir höndum. 9. desember 2010 21:00 Íslendingar komu að gerð norsku skýrslunnar Skýrsla fyrirtækisins LYNX Advokatfirma um starfsemi Landsbankans er mikill áfellisdómur yfir stjórnendum Landsbankans og endurskoðendum hans, PricewaterhouseCoopers. Fram kemur í skýrslunni að Íslendingar hafi komið að gerð hennar, en hún var unnin fyrir embætti sérstaks saksóknara. 9. desember 2010 21:00 Mest lesið „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Viðskipti innlent Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Viðskipti innlent Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Viðskipti innlent Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Viðskipti erlent Seðlabankinn ósammála Daða Má Viðskipti innlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Viðskipti innlent Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Lovísa til Orkuveitunnar „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Anna Lísa til Aton Seðlabankinn ósammála Daða Má Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Sjá meira
Norska skýrslan: Villandi ársreikningar og falskur hagnaður Landsbankans Ársreikningur Landsbankans fyrir árið 2007 var rangur og villandi á margvíslegan hátt, hagnaður var falsaður og eigið fé var gróflega ofmetið, að því er fram kemur í skýrslu norska fyrirtækisins LYNX Advokatfirma, en fréttastofa hefur skýrsluna undir höndum. 9. desember 2010 21:00
Íslendingar komu að gerð norsku skýrslunnar Skýrsla fyrirtækisins LYNX Advokatfirma um starfsemi Landsbankans er mikill áfellisdómur yfir stjórnendum Landsbankans og endurskoðendum hans, PricewaterhouseCoopers. Fram kemur í skýrslunni að Íslendingar hafi komið að gerð hennar, en hún var unnin fyrir embætti sérstaks saksóknara. 9. desember 2010 21:00