Vill rifta samkomulagi VBS og Landsbankans 11. september 2010 12:15 Mynd/Pjetur
Landsbankinn tók til sín nokkrar af verðmætustu eignum VBS fjárfestingarbanka, að fjárhæð 4,3 milljörðum króna, nokkrum mánuðum áður en VBS fór í þrot. Slitastjórnin vill rifta þessari greiðslu og verður tekin ákvörðun um málshöfðun á næstu vikum. VBS var tekið til slitameðferðar í byrjun apríl á þessu ári. Rúmlega hálfu ári áður gerðu VBS og Landsbankinn samkomulag um uppgjör á skuldum VBS. Greiðslan, sem nam rúmlega 4,3 milljörðum króna, fór þannig fram að VBS setti verðmætin inn í nýtt einkahlutafélag sem fékk nafnið Vingþór og afsalaði svo félaginu til Landsbankans. Greiðslan fór fram í nóvember í fyrra. Landsbankinn greiddi fyrir hlutina í Vingþóri með skuldajöfnuði og eftirgjöf krafna sem námu tæpum 7 milljörðum króna. Slitastjórn vill rifta þessari greiðslu og sendi bréf þess efnis til skilanefndar Landsbankans í lok ágúst. Samkvæmt gjaldþrotalögunum er skuldajöfnuður óheimill ef lánardrottinn veit að skuldarinn er ógjaldfær. Greiðsluerfiðleikar VBS höfðu margoft komið fram, m.a. í fjölmiðlum og árshlutauppgjöri bankans. Auk þess sem Landsbankinn og VBS höfðu lengi unnið að skuldauppgjöri en samkvæmt heimildum fréttastofu sýna gögn frá þeirri vinnu að VBS gæti ekki greitt skuldir sínar með venjulegum hætti. Slitastjórnin telur að greiðslan hafi verið ótilhlýðilega til hagsbóta fyrir bankann á kostnað annarra kröfuhafa VBS auk þess sem greiðslumátinn var óvenjulegur. Samþykki skilanefnd Landsbankans ekki að rifta þessari greiðslu mun slitastjórn VBS höfða riftunarmál. Fari málið á þann veg má gera ráð fyrir að slitastjórnin fari einnig fram á skaðabætur.
Mest lesið Skilur að fólk hafi áhyggjur af falli Bitcoin en er sjálfur rólegur Viðskipti erlent Platar sjálfan sig á morgnana til að líða geðveikt fersk Atvinnulíf Hækka lánshæfiseinkunn Íslands í ljósi bættrar stöðu ríkisfjármála Viðskipti innlent Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Viðskipti innlent Stærsti Ímarkdagurinn í 40 ár: Alþjóðlegar stjörnur markaðsmála mæta Samstarf Bein útsending: Verðlaunaafhending Stjórnverðlaunanna Viðskipti innlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hækka lánshæfiseinkunn Íslands í ljósi bættrar stöðu ríkisfjármála Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Bein útsending: Verðlaunaafhending Stjórnverðlaunanna „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Lovísa til Orkuveitunnar „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Anna Lísa til Aton Seðlabankinn ósammála Daða Má Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Sjá meira