Óttast að flóðin kostuðu tugi manns lífið 17. júní 2010 01:00 Bílar í kös Miklar skemmdir urðu á eignum í Suður-Frakklandi. nordicphotos/AFP
Óttast var í gær að flóðin í sunnanverðu Frakklandi hafi kostað meira en þrjátíu manns lífið. Vitað var um nítján dauðsföll síðdegis, en að auki var að minnsta kosti tólf manns saknað. Verst urðu flóðin á frönsku Rivíerunni, þar sem allt að tveggja metra hátt brúnleitt vatn lá víða yfir fögrum smáþorpum sem ferðamenn hafa sótt stíft í. Flóðin ollu miklum skemmdum, meðal annars á húsum, bifreiðum og gróðri. Flóðin hófust á þriðjudagskvöld þegar skyndilegt úrhelli kom úr lofti, meiri úrkoma en áður hefur þekkst þarna á þessum árstíma. Þar sem mestu flóðin urðu, í Arcs skammt frá Draguignan, mældist úrkoman 40 sentimetrar, en það samsvarar meðalúrkomu sex mánaða samtals á þessum stað. Nærri þrjú þúsund manna björgunarlið gekk til liðs við 650 manna lögreglusveitir svæðisins. Notast var við þyrlur til að bjarga fólki úr sjálfheldu aðfaranótt þriðjudags. Síðdegis í gær voru 89 þúsund manns enn án rafmagns.- gb
Erlent Fréttir Mest lesið „Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ Innlent Ákveðið álag sem maður sé undir án þess að fatta það Innlent Lögreglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða Innlent Gull að leysa kókaín af hólmi Erlent Undirmönnun hjúrkunarfræðinga tengist dánartíðni sjúklinga Innlent Segir kollega sína á þingi hafa framið húsbrot í fylleríisferð fyrir austan Innlent Hafa gert árásir á sex orkumannvirki eftir yfirlýsingu Trump Erlent Yfir sjötíu prósent óánægja með Ingu Sæland Innlent Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Veður Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Innlent Fleiri fréttir Hafa gert árásir á sex orkumannvirki eftir yfirlýsingu Trump Gull að leysa kókaín af hólmi Stolnu málverkin fundust á bak við vegg Henda mat eftir tölvuárás hitaði kæla upp í fimmtíu gráður Gerðu húsleit hjá þingkonu sem Trump á sökótt við Verðlaunaðir fyrir að smíða hagstjórnartæki samtímans Skaut konu sína, börn og barnabörn Sektaður fyrir að geyma lík foreldranna í frysti í áratugi Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Vonast til að leysa ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart Tígrisdýrið verður ekki aflífað Rússar ráðist á orkuinnviði þrátt fyrir yfirlýsingu Trumps Fær aukadag til stjórnarmyndunar Kom af fjöllum eftir tilkynningu Trump um orkuvopnahlé Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Leó páfi á leið í aðgerð eftir að hnútur fannst á lunga Vara við því að fara um flugvelli í Sádí-Arabíu Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Útskrifuð af sjúkrahúsi og send aftur í fangelsið Vill nýjan Úkraínuforseta Lést eftir árás tígrisdýrs í dýragarði Níu létust eftir skotárás Þrjú börn meðal fimmtán látinna í árás á íbúðarblokkir Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Þúsundum gert að yfirgefa heimili sín vegna Isaias Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Trump samdi við Pútín um dísel Sjá meira