Kröfuhafi hafnar tillögu Reykjaneshafnar 1. desember 2010 12:55
Einn af 20 kröfuhöfum Reykjaneshafnar hefur hafnað tillögu stjórnenda hafnarinnar um frestun á greiðslum og afborgunum af lánum fram til maí á næsta ári. Fundað verður um málið þann 20. desember n.k. Í tilkynningu til Kauphallarinnar segir að þann 3. nóvember 2010 setti Reykjaneshöfn fram tillögu til lánveitenda sinna og eigenda fjármálagerninga útgefnum af Reykjaneshöfn (hér eftir „kröfuhafar") um að gjaldföllnum greiðslum og dráttarvöxtum yrði bætt við höfuðstól og samningum og fjármálagerningum skilmálabreytt þannig að næsta greiðsla yrði ekki fyrir 1. maí 2011 ásamt því að ýmsar kvaðir voru settar á Reykjaneshöfn á þessum tíma sbr. nánar efni tillögunnar. Einn kröfuhafi hefur lýst því að sér sé ómögulegt að samþykkja tillöguna sökum þeirra laga sem gilda um starfsemi viðkomandi kröfuhafa og var tillögunni í kjölfarið formlega breytt á þann veg að tekið var tillit til aðstæðna viðkomandi. Breyting á tillögu Reykjaneshafnar var tilkynnt formlega í kauphöll þann 25. nóvember 2010. Kröfuhafar Reykjaneshafnar eru samtals tuttugu talsins. Tillagan þarf samþykki allra kröfuhafa nema Lánasjóðs Sveitarfélaga til að ná fram að ganga, eða samtals nítján kröfuhafa. Af þessum nítján kröfuhöfum hafa átján samþykkt tillögu Reykjaneshafnar með þeirri breytingu sem var gerð á henni þann 25. nóvember s.l. Telst tillögunni því hafnað. Í ljósi þessarar niðurstöðu býður stjórn Reykjaneshafnar kröfuhöfum til fundar föstudaginn 10. desember n.k. klukkan 10:00 í sal G á Hilton Reykjavík Nordica. Á fundinum verður gerð grein fyrir helstu athugasemdum sem komið hafa fram við tillögu Reykjaneshafnar og óskað eftir umræðum um möguleg næstu skref.
Mest lesið Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Viðskipti innlent „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Viðskipti innlent Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Viðskipti innlent Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Viðskipti innlent Bein útsending: Verðlaunaafhending Stjórnverðlaunanna Viðskipti innlent Seðlabankinn ósammála Daða Má Viðskipti innlent Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Bein útsending: Verðlaunaafhending Stjórnverðlaunanna „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Lovísa til Orkuveitunnar „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Anna Lísa til Aton Seðlabankinn ósammála Daða Má Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Sjá meira