Viðskipti innlent

Hagvöxtur mældist 1,2% milli ársfjórðunga

Landsframleiðsla jókst um 1,2% að raungildi frá 2. ársfjórðungi 2010 til 3. ársfjórðungs 2010.

Þetta kemur fram á vefsíðu Hagstofunnar. Þar segir að á sama tíma jukust þjóðarútgjöld um 4,2%. Einkaneysla jókst um 3,8% en fjárfesting dróst saman um 5,6%. Samneysla dróst saman um 0,6%.

Á sama tímabili jókst útflutningur um 0,8% og innflutningur um 6,8%. Þessar tölur eru árstíðaleiðréttar og miðast við vöxt milli ársfjórðunga, ekki ára.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×