IFS: Ársverðbólgan lækkar úr 3,3% í 3,0% 17. nóvember 2010 12:09
Verðbólguspá IFS greiningar fyrir nóvember hljóðar upp á hækkun vísitölu neysluverðs um 0,4%. Ef spáin gengur eftir, mun 12 mánaða verðbólga mælast 3,0%. Verðbólga undanfarinna þriggja mánaða á ársgrundvelli hækkar úr 4,0% í 4,6%. Hagstofan mælir vísitölu neysluverðs í þessari viku, mánudag til föstudags, en niðurstöðurnar verða birtar fimmtudaginn 25. nóvember nk. Í tilkynningu frá IFS segir að samkvæmt algengum verðum hjá stóru olíufélögunum þá hefur verð á bensíni hækkað um 2,53% og verð á dísel hefur hækkað um 1,99% (vísitöluáhrif: +0,13%). Í spánni er gert ráð fyrir -0,46% lækkun á reiknaðri húsaleigu (vísitöluáhrif: -0,06%). Byggingarvísitala lækkaði um -2,04% í nóvember og í spánni er gert ráð fyrir -2,04% lækkun á verði viðhalds og viðgerða á húsnæði (vísitöluáhrif: -0,10%). Mánaðarleg verðmæling IFS bendir til 0,8% hækkunar á verði matarkörfunnar (vísitöluáhrif: 0,08%). Mæling á verði matarkörfunnar er framkvæmd á ákveðnum vörum sem nær ávallt eru til sölu og svo virðist sem að þær hafi hækkað í verði. Fatnaður og skór hækkuðu um 5% frá því í október (vísitöluáhrif: 0,20%). Gjaldskrárhækkun OR heldur áfram að skila sér inn í vísitöluna og nema vænt áhrif hennar um 0,17% á vísitölu neysluverðs. OR er með um helmings markaðshlutdeild í smásölu á raforkumarkaði og í verðbólguspánni nú er hvorki gert ráð fyrir að samkeppnisaðilar hækki gjaldskrár né kaupendur raforku/heits vatns hækki verð til að mæta auknum kostnaði. Líklegt er að samkeppnisaðilar hækki gjaldskrár á næstunni en erfitt er að meta það sem stendur. Gangi þessi spá eftir mun verðbólgumarkmið Seðlabankanns nást fyrir áramót, ef verðbólgan í desember mælist næstum engin (0,024%) eða verðhjöðnun verði raunin. „Við teljum að 12 mánaða verðbólga verði nær markmiðinu í lok árs vegna lágs verðbólguþrýstings í desember," segir IFS greining.
Mest lesið Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Viðskipti innlent „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Viðskipti innlent Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Viðskipti innlent Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Viðskipti innlent Bein útsending: Verðlaunaafhending Stjórnverðlaunanna Viðskipti innlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Seðlabankinn ósammála Daða Má Viðskipti innlent Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Viðskipti innlent „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Bein útsending: Verðlaunaafhending Stjórnverðlaunanna „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Lovísa til Orkuveitunnar „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Anna Lísa til Aton Seðlabankinn ósammála Daða Má Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Sjá meira