Mannvit gerir samning í Serbíu 3. desember 2010 10:43
Verkfræðistofan Mannvit hefur gert samning um að kortleggja möguleika á nýtingu endurnýjanlegra orkugjafa í Serbíu. Mannvit er hluti af hóp fyrirtækja, sem leiddur er af spænska ráðgjafarfyrirtækinu Eptisa, sem mun vinna verkefnið fyrir námu- og orkumálaráðuneyti Serbíu. Í tilkynningu segir að sérstök áhersla verður lögð á að meta möguleika á nýtingu jarðhita í landinu og einnig verða könnuð tækifæri til uppsetningar lífmassaorkuvera (CHP) í Serbíu. Verkefnið mun hefjast um miðjan janúar og næstu 18 mánuðina mun Mannvit leiða starfið við að kortleggja jarðhitasvæði í Serbíu og gera í framhaldinu hagkvæmnisathuganir fyrir þrjú ákjósanlegustu svæðin. Þá mun Mannvit ásamt samstarfsaðilum taka þátt í samskonar vinnu við mat á því hvort aðstæður séu heppilegar fyrir lífmassaorkuver þar í landi. Evrópusambandið styrkir verkefnið, sem er liður í að aðstoða Serbíu við að ná því markmiði sambandsins að endurnýjanlegir orkugjafar standi undir að minnsta kosti 20% af orkunýtingu aðildarlandanna árið 2020. Alls mun Evrópusambandið verja 1,5 milljónum evra í þetta undirbúningsverkefni. Þetta er fyrsta verkefni Mannvits í Serbíu en fyrirtækið hefur undanfarin ár sinnt ýmsum verkefnum á sviði endurnýjanlegra orkugjafa í nágrannalöndunum. Mest hefur umfang starfseminnar verið í Ungverjalandi, þar sem Mannvit rekur skrifstofu, en einnig hefur fyrirtækið starfað í Slóvakíu, Króatíu, Rúmeníu og Grikklandi. „Þetta er mjög áhugavert verkefni fyrir okkur og eflir enn frekar starfsemi okkar í Mið-Evrópu, sem er orðin mikilvæg fyrir Mannvit. Evrópusambandið leggur mikið upp úr því að nýting endurnýjanlegra orkugjafa verði aukin í aðlildarlöndunum á næstu árum og á þessu svæði eru ýmis vannýtt tækifæri á þessu sviði. Þar getum við lagt til mikla íslenska sérfræðiþekkingu við nýtingu jarðhita eins og hefur sýnt sig, t.a.m. í Ungverjalandi. Við vonumst að sjálfsögðu til að þessi undirbúningsvinna sem við erum að ráðast í nú leiði síðan til enn frekari verkefna þegar fram í sækir," segir Tryggvi Jónsson, markaðsstjóri hjá Mannviti.
Mest lesið Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Viðskipti innlent „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Viðskipti innlent Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Viðskipti innlent Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Viðskipti innlent Bein útsending: Verðlaunaafhending Stjórnverðlaunanna Viðskipti innlent Seðlabankinn ósammála Daða Má Viðskipti innlent Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Bein útsending: Verðlaunaafhending Stjórnverðlaunanna „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Lovísa til Orkuveitunnar „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Anna Lísa til Aton Seðlabankinn ósammála Daða Má Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Sjá meira