Skattar hækka verðtryggð lán heimila um 15,6 milljarða 10. desember 2010 09:39
Verðtryggð lán íslenskra heimila hafa hækkað um 15,6 milljarða kr. frá því í febrúar á síðasta ári vegna skattahækkana og annarra aukinna álagna af hálfu ríkisins sem hafa áhrif á vísitölu neysluverðs. Þetta kemur fram í svari efnahags- og viðskiptaráðherra við fyrirspurn Margrétar Tryggvadóttur þingmanns Hreyfingarinnar á Alþingi um verðtryggð lán íslenskra heimila og fyrirtækja. Margrét spurði hve mikið hafa verðtryggð lán íslenskra heimila hækkað síðan 1. febrúar 2009, í krónum annars vegar og prósentum hins vegar, vegna skattahækkana og annarra aukinna álagna af hálfu ríkisins sem hafa áhrif á vísitölu neysluverðs? Í svarinu segir að áhrif skattahækkana á vísitölu neysluverðs eru um 1,26% frá febrúar 2009 til október 2010 samkvæmt mælingum Hagstofu Íslands. Það þýðir að verðtryggð lán íslenskra heimila hækkuðu sem því nemur. Samkvæmt skýrslu sérfræðingahóps um skuldavanda heimilanna voru verðtryggð fasteignalán heimilanna um 1.236 milljarðar kr. 1. október 2010 og því nemur hækkunin um 15,6 milljörðum kr. á tímabilinu. Almenn vörugjöld eru ekki meðtalin þar sem Hagstofan greinir áhrif þeirra ekki með beinum hætti í vísitölunni. Þá spurði Margrét hve mikið hafa verðtryggð lán íslenskra fyrirtækja hækkað síðan 1. febrúar 2009, í krónum annars vegar og prósentum hins vegar, vegna skattahækkana og annarra aukinna álagna af hálfu ríkisins sem hafa áhrif á vísitölu neysluverðs? Í svarinu segir að áhrif skattahækkana á vísitölu neysluverðs eru um 1,26% frá febrúar 2009 til október 2010 samkvæmt mælingum Hagstofu Íslands. Það þýðir að verðtryggð lán fyrirtækja hækkuðu sem því nemur. Samkvæmt tölum frá Seðlabanka Íslands voru verðtryggð lán fyrirtækja og eignarhaldsfélaga um 205 milljarðar kr. í lok september 2010 og því nemur hækkunin um 2,6 milljörðum kr. á tímabilinu. Almenn vörugjöld eru ekki meðtalin þar sem Hagstofan greinir þau ekki með beinum hætti í vísitölunni.
Mest lesið „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Viðskipti innlent Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Viðskipti innlent Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Viðskipti innlent Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Viðskipti erlent Seðlabankinn ósammála Daða Má Viðskipti innlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Viðskipti innlent Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Lovísa til Orkuveitunnar „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Anna Lísa til Aton Seðlabankinn ósammála Daða Má Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Sjá meira