Herða á refsingar fyrir slæmt hátterni 26. maí 2010 04:00 Sumir stjórnarmenn eiga að búa yfir sérfræðiþekkingu á áhættutengdum þáttum í rekstri, að mati bresks sérfræðings.Fréttablaðið/GVA
Setja á stjórnum fyrirtækja strangar reglur og þeim verður að fylgja af hörku. Þetta segir Chris Pierce, forstjóri breska fyrirtækisins Global Governance Service. Hann var frummælandi á hádegisfundi í gær um stjórnar-hætti hjá fyrirtækjum á vegum Viðskiptaráðs, Samtaka atvinnulífsins, Kauphallarinnar og Rannsóknamiðstöðvar um stjórnarhætti við Háskóla Íslands. Pierce benti á að tekið hafi verið af hörku á svokölluðum hvítflibba-glæpum upp á síðkastið; hinn bandaríski Bernard Maddoff var fyrir tæpu ári dæmdur í 150 ára fangelsi fyrir umfangsmikil og gróf fjármálasvik og Huang Guangyu, ríkasti maður Kína í hittiðfyrra, hlaut fjórtán ára dóm fyrir mútur og innherjasvik í síðustu viku. Pierce sagði mikilvægt að stjórnarformaður fyrirtækis helgi sig stjórnarstarfinu og því geti hann ekki setið í mörgum stjórnum á sama tíma. Til viðbótar eigi að kalla til óháða eftirlitsaðila sem auga hafi með stjórnum fyrirtækja. Við það ættu stjórnarhættir að batna, að hans mati. Pierce hefur unnið að málum sem þessu tengjast í Portúgal, Grikklandi og Spáni, löndum sem öll standa á haus í fjármálakreppunni. Hann sagði stöðu stjórnarhátta bágborna innan ESB-ríkjanna og vitnaði til þess að aðeins tæp fimmtán prósent fyrirtækja á Spáni birti nöfn stjórnarmanna í ársuppgjöri. „Þetta er hræðilegt,“ sagði hann . Brasilíumenn eru langt komnir í stuðningi við góða stjórnarhætti, hafa sett á laggirnar nýjan hlutabréfamarkað eingöngu fyrir fyrirtæki sem tekið hafi upp viðurkennda og góða stjórnarhætti. „Það er gríðarlegur munur á fyrirtækjum sem ástunda góða starfshætti og hinum sem ekki gera það,“ sagði Pierce og benti á að gengi hlutabréfa í fyrrnefndu fyrirtækjunum væri tugum prósentum hærra en hinna. jonab@frettabladid.is
Mest lesið „Ég held bara að við sem þjóð séum ekki tilbúin í þetta“ Viðskipti innlent Kennari kveður: „Allt gekk auðvitað út á rúntinn“ Atvinnulíf Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Viðskipti innlent Skilur að fólk hafi áhyggjur af falli Bitcoin en er sjálfur rólegur Viðskipti erlent Platar sjálfan sig á morgnana til að líða geðveikt fersk Atvinnulíf „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Viðskipti innlent Hækka lánshæfiseinkunn Íslands í ljósi bættrar stöðu ríkisfjármála Viðskipti innlent Bein útsending: Verðlaunaafhending Stjórnverðlaunanna Viðskipti innlent Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Fleiri fréttir „Ég held bara að við sem þjóð séum ekki tilbúin í þetta“ Hækka lánshæfiseinkunn Íslands í ljósi bættrar stöðu ríkisfjármála Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Bein útsending: Verðlaunaafhending Stjórnverðlaunanna „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Lovísa til Orkuveitunnar „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Anna Lísa til Aton Seðlabankinn ósammála Daða Má Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Sjá meira