Höftin eiga að hverfa 6. nóvember 2010 05:45 Þórður Friðjónsson, forstjóri Kauphallarinnar, stýrði umræðum á fundi Viðskiptaráðs í gær. Í pallborði voru Arnór Sighvatsson, Kristín Pétursdóttir, Benedikt Jóhannesson og Ásgeir Jónsson. fréttablaðið/valli
Stjórn efnahagsmála verður að bregðast illilega til þess að gjaldeyrishöftum verði hér við haldið um lengri tíma. Þetta er meðal þess sem fram kom í máli Más Guðmundssonar seðlabankastjóra á fundi Viðskiptaráðs Íslands í gærmorgun. Hann sagði höftin hafa gegnt hlutverki í að ná stöðugleika en þau væru nú farin á rekast á önnur markmið, svo sem um aukinn hagvöxt, fjárfestingu og tengingu landsins við aðra fjármálamarkaði. Um leið kom fram í máli Más að ekki væri hægt að útiloka að Alþingi samþykkti að framlengja gjaldeyrishöftin á næsta ári, en samkvæmt lögum rennur gildistími þeirra út í ágúst 2011. Fulltrúar í pallborði lýstu margir hverjir efasemdum um að hægt yrði að aflétta höftum í bráð, enda hefðu þau staðið í áratugi í einhverri mynd áður en þeim var aflétt á tíunda áratug síðustu aldar. Arnór Sighvatsson aðstoðarseðlabankastjóri sagði aðstæður í dag hins vegar aðrar á tímum alþjóðlegra viðskipta og því afar ólíklegt að höftin vörðu lengi. „Svo lengi sem við erum aðilar að Evrópska efnahagssvæðinu sé ég ekki fyrir mér að við getum verið lengi með höftin," sagði hann og benti á að þeim yrði ekki viðhaldið nema í skjóli samþykktar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Hann benti á að efnahagsáætlun stjórnvalda rynni út í ágúst á næsta ári og ekki seinna en þá þyrfti að liggja fyrir tímasett áætlun um afnám hafta. Arnór sagði jafnframt ljóst að ef þjóðin hafnaði aðild að Evrópusambandið þyrfti að bæta framkvæmd peningastefnunnar. „Við þurfum einhvers konar viðbótartæki til viðbótar við vaxtatækið til að minnka veltinginn," sagði hann en taldi „draumóra" að gera ráð fyrir því að sveiflur á gengi krónunnar hyrfu. olikr@frettabladid.is
Mest lesið Hækka lánshæfiseinkunn Íslands í ljósi bættrar stöðu ríkisfjármála Viðskipti innlent Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Viðskipti innlent „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Viðskipti innlent Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Viðskipti innlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Viðskipti innlent Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Viðskipti innlent Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Viðskipti innlent „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Viðskipti innlent Stærsti Ímarkdagurinn í 40 ár: Alþjóðlegar stjörnur markaðsmála mæta Samstarf Fleiri fréttir Hækka lánshæfiseinkunn Íslands í ljósi bættrar stöðu ríkisfjármála Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Bein útsending: Verðlaunaafhending Stjórnverðlaunanna „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Lovísa til Orkuveitunnar „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Anna Lísa til Aton Seðlabankinn ósammála Daða Má Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Sjá meira