Ekki fjallað um virkjanaleyfi vegna ónægra upplýsinga Ingimar Karl Helgason skrifar 24. ágúst 2010 18:31
Orkustofnun fjallar ekki um virkjanaleyfi fyrir HS orku fyrr en fyrirtækið hefur fært henni frekari gögn um nýtingarþol jarðhitasvæðisins úti á Reykjanesi. Málið hefur verið í höndum HS orku síðan í mars. HS orka fékk nýlega til landsins gufuhverfil, sem ætlunin er að nota við Reykjanesvirkjun. Fyrirtækið pantaði hverfilinn fyrir tveimur árum, en hann mun vera sérsmíðaður fyrir svæðið úti á Reykjanesi. Þessi viðbótarorka á siðan að fara til álvers í Helguvík. Reykjanesvirkjun hefur verið starfrækt frá árinu 2006. Þar eru framleidd 100 megawött af raforku, en ætlað er að auka vinnsluna um 50 megawött með nýja hverflinum. Virkjanaleyfi er fyrir hundrað megavattavinnslunni, en HS orka hefur sótt um virkjanaleyfi vegna nýja hverfilsins. Orkustofnun veitir virkjanaleyfi. Í athugasemdum við matsskýrslu benti stofnunin meðal annars á óvissu um hversu mikla nýtingu svæðið þoli. Óvissa sé fyrir hendi um jarðhitakerfið, meðal annars vegna þess hversu lítil reynsla sé af nýtingu á svæðinu; vinnslan sem fylgi núverandi virkjun sé ekki komin í jafnvægisástand. Með öðrum orðum efast stofnunin um að svæðið þyldi frekari nýtingu. HS orka hefur hins vegar talið að svæðið gerði það, svo sem kaupin á hverflinum bera með sér, en hann kostaði tvo milljarða króna. En málið er í höndum HS orku. Orkustofnun óskaði eftir því snemma á árinu að fyrirtækið færði frekari rök um nýtingargetu svæðisins. HS orka hefur frá í mars unnið að því, meðal annars borað frekari holur sem þykja að mati HS orku sýna fram á getu svæðisins. Niðurstöðum hefur ekki verið skilað til stofnunarinnar. Það mun eiga að gerast í næsta mánuði. Fyrr fjallar Orkustofnun ekki um virkjanaleyfið.
Skroll-Viðskipti Mest lesið Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Viðskipti innlent Hagnaðurinn tæplega tvöfaldaðist milli ára Viðskipti innlent Þegar átta stunda vinnudagur og fimm daga vinnuvika þóttu stórhættulegar hugmyndir Atvinnulíf Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Viðskipti innlent Hundruðum sagt upp í maí Viðskipti innlent Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Viðskipti innlent Gengi Oculis hrynur Viðskipti innlent Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Samstarf Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Viðskipti innlent Ný flaga færir gervigreindina af skýinu Viðskipti erlent Fleiri fréttir Hundruðum sagt upp í maí Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Opna opinbera upplýsingagátt um almyrkvann Hagnaðurinn tæplega tvöfaldaðist milli ára Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Einar einbeitir sér að norðurslóðum og Hjalti tekur við Gengi Oculis hrynur Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Sjá meira