Samið við Kaupþingsmenn sem geta nær ekkert greitt 14. desember 2010 06:45
Tæplega helmingur þeirra rúmlega sextíu starfsmanna Kaupþings sem slitastjórn bankans hefur rukkað vegna lána sem þeir fengu til hlutabréfakaupa hefur samið við bankann um endurgreiðslu. Samningarnir sem þegar hafa náðst munu skila búinu vel á annað hundrað milljónum. Starfsmennirnir fengu fimmtán milljarða að láni með persónulegri ábyrgð sem var felld niður á stjórnarfundi bankans nokkrum dögum fyrir bankahrun. Þeirri ákvörðun var rift í vor. Persónulegu ábyrgðirnar sem nú hefur verið reynt að innheimta námu þó innan við tíu milljörðum. Af þessum ríflega sextíu starfsmönnum hlutu um tuttugu lykilstarfsmenn níutíu prósent heildarupphæðarinnar að láni. Enginn starfsmannanna hefur verið knúinn í gjaldþrot, að sögn Ólafs Garðarssonar, formanns slitastjórnar Kaupþings. Langflestir hafa samþykkt að skila inn umbeðnum upplýsingum, til dæmis skattframtölum mörg ár aftur í tímann, svo slitastjórnin geti metið greiðslugetuna og samið á grundvelli hennar. "Svo eru dæmi um að fólk neiti okkur um upplýsingar og þá fara málin fyrir dóm," segir Ólafur. Samið var við flesta um að endurgreiða sextíu til sjötíu prósent. "Nú erum við að fást við þá sem ekki geta greitt sínar skuldir - sýna greiðsluvilja en eiga ekki eignir til að mæta þeim," segir Ólafur. Kröfuhafar hafi ekki hag af að keyra menn í þrot, enda eignir þeirra gjarnan veðsettar og lítið úr þrotabúunum að hafa. Á þriðja tug manna hafa kosið að fara með mál sín fyrir dóm. Það eru aðallega þeir sem mest skulda.- sh
Mest lesið „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Viðskipti innlent Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Viðskipti innlent Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Viðskipti innlent Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Viðskipti erlent Seðlabankinn ósammála Daða Má Viðskipti innlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Viðskipti innlent Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Lovísa til Orkuveitunnar „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Anna Lísa til Aton Seðlabankinn ósammála Daða Má Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Sjá meira