Hægt að tilkynna nafnlaust um tryggingarsvik hjá VÍS 3. maí 2010 09:45 „Við hjá VÍS viljum leggja okkar að mörkum til að draga úr vátryggingasvikum, til hagsbóta fyrir bæði viðskipavini, félagið sjálft og samfélagið í heild. Því hefur verið skerpt enn frekar á stefnu félagsins varðandi vátryggingasvik," segir Guðmundur Örn Gunnarsson, forstjóri VÍS í tilkynninguni.
Vátryggingafélag Íslands hf. hefur komið upp sérstakri tilkynningasíðu á vef félagsins þar sem hægt er að láta vita nafnlaust um meint vátryggingasvik en ný könnun Capacent Gallup sýnir að meira en helmingur landsmanna er tilbúinn að tilkynna um slík svik, ef hægt er að gera það nafnlaust. Í tilkynningu segir að vátryggingasvik kosta íslenskt samfélag verulegar fjárhæðir en ætla má að um 10-15% af greiddum tryggingabótum sé vegna vátryggingasvika. Því má gera ráð fyrir að kostnaður vegna vátryggingasvika á Íslandi sé ekki undir þremur milljörðum króna á hverju ári, en sá kostnaður lendir að lokum á viðskiptavinum tryggingafélaganna sem þurfa að greiða fyrir svikin með hærri iðgjöldum. „Við hjá VÍS viljum leggja okkar að mörkum til að draga úr vátryggingasvikum, til hagsbóta fyrir bæði viðskipavini, félagið sjálft og samfélagið í heild. Því hefur verið skerpt enn frekar á stefnu félagsins varðandi vátryggingasvik," segir Guðmundur Örn Gunnarsson, forstjóri VÍS í tilkynninguni. Niðurstaða nýrrar könnunar Capacent Gallup fyrir Samtök fjármálafyrirtækja (SFF), um að þriðji hver Íslendingur þekki einhvern sem stundað hafi vátryggingasvik, er sláandi að mati forstjóra VÍS og ekki seinna vænna að grípa til aðgerða. „Við viljum m.a. koma á stórefldu samstarfi stjórnvalda og vátryggingafélaganna í þessari baráttu og styrkja enn frekar lagalegan grundvöll kærumála vegna vátryggingasvika," segir Guðmundur og bætir við að aðstoð almennings sé einnig mikilvæg. Fram komi í könnuninni að nær allir aðspurðra telji að vátryggingasvik séu alvarlegt lagabrot og yfir helmingur aðspurðra sé viljugur að tilkynna um slíkt brot, ef hægt sé að gera það nafnlaust. Þessi hópur geti verið enn stærri því einungis fjórðungur aðspurðra hafi talið það ólíklegt að þeir myndu tilkynna um vátryggingasvik. „Það er út frá þessum svörum sem við ákváðum að setja sérstakan tilkynningahnapp vegna vátryggingasvika á heimasíðuna okkar. Þar getur fólk tilkynnt nafnlaust um hugsanleg vátryggingasvik og verið alveg öruggt um að nafn þeirra verði ekki dregið inn í málið. Starfsfólk okkar fer síðan yfir hverja tilkynningu um sig og ákveður hvað gera skal í framhaldinu," segir forstjóri VÍS en undirstrikar jafnframt að langflestir viðskiptavina félagsins séu heiðarlegir í tjónsuppgjörum og því þurfi þeir ekki að taka þessar aðgerðir til sín á neinn hátt. Vátryggingasvik flokkast undir fjársvik og samkvæmt 248.gr. íslensku hegningarlaganna varðar það allt að 6 ára fangelsi að gerast sekur um fjársvik.
Mest lesið Birgir Ómar Haraldsson er látinn Viðskipti innlent „Ég held bara að við sem þjóð séum ekki tilbúin í þetta“ Viðskipti innlent Margborgar sig að gera við stjörnu í rúðu: Carglass hefur opnað á Íslandi Samstarf Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Viðskipti innlent Kennari kveður: „Allt gekk auðvitað út á rúntinn“ Atvinnulíf Skilur að fólk hafi áhyggjur af falli Bitcoin en er sjálfur rólegur Viðskipti erlent Bein útsending: Verðlaunaafhending Stjórnverðlaunanna Viðskipti innlent „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Viðskipti innlent Platar sjálfan sig á morgnana til að líða geðveikt fersk Atvinnulíf EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Fleiri fréttir Birgir Ómar Haraldsson er látinn „Ég held bara að við sem þjóð séum ekki tilbúin í þetta“ Hækka lánshæfiseinkunn Íslands í ljósi bættrar stöðu ríkisfjármála Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Bein útsending: Verðlaunaafhending Stjórnverðlaunanna „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Lovísa til Orkuveitunnar „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Anna Lísa til Aton Seðlabankinn ósammála Daða Má Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Sjá meira