Dregið í Evrópukeppnum í handbolta - Haukar mæta Íslandsvinum Hjalti Þór Hreinsson skrifar 27. júlí 2010 14:30 Haukar halda til Ítalíu. Fréttablaðið/Stefán
Íslandsmeistarar Hauka fara til Ítalíu í Evrópukeppni félagsliða í handbolta og mæta þar Conversano í haust. Dregið var í morgun en fjögur íslensk lið voru í pottinum. Haukar fara beint í aðra umferð en fyrri leikur liðanna verður helgina 16. eða 17. október á Ítalíu og sá síðari á Íslandi helgina þar á eftir. Haukar mættu Conversano árið 2006 og komust þá áfram líkt og HK sem mætti ítölsku meisturunum árið eftir. Í Evrópukeppni bikarhafa mætir HK liði Kaustik frá Rússlandi í þriðju umferð. Fyrri leikur liðanna verður leikinn á Íslandi helgina 20. eða 21. nóvember og sá síðari í Rússlandi viku síðar. Í Evrópukeppni félagsliða kvenna dróst kvennalið Vals á móti Iuventa Michalovce frá Slóvakíu í fyrstu umferð. Fyrri leikur liðanna verður leikinn á Íslandi helgina 4. eða 5. september og sá síðari í Slóvakíu helgina á eftir. Ef Valur kemst áfram í aðra. umferð þá mætir liðið Vfl Oldenburg frá Þýskalandi og fer þá fyrri leikur liðanna fram í Þýskalandi helgina 16. eða 17. október og sá síðari á Íslandi viku síðar. Í Evrópukeppni bikarhafa kvenna dróst Fram gegn LC Bruhl Handball frá Sviss í annarri umferð. Fyrri leikur liðanna verður leikinn á Íslandi helgina 16. eða 17. október og sá síðari í Sviss helgina þar á eftir. Ef Fram kemst áfram í þriðju umferð þá mætir liðið Podatkova University frá Úkraínu helgina 13. eða 14. nóvember.
Olís-deild karla Olís-deild kvenna Mest lesið Gómuð við gróft svindl í Berlín Sport Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Handbolti Utan vallar: Sögufræg vinátta lögð til hliðar í stutta stund með ógn úr austri til staðar Fótbolti Gylfi klár og mun spila stórt hlutverk í kvöld Fótbolti Leikdagur í Tallinn: Hitað upp á Íslandstorgi fyrir mikilvægan leik Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Tók óvænt þátt eftir að mamma skráði hana Sport Leikurinn í kvöld klárast rétt fyrir miðnætti og því dræm mæting Sport „Þeir eiga allt þetta hrós fyllilega skilið“ Handbolti Brotinn Gylfi Þór fórnar sér: „Brynja, ég elska þig“ Fótbolti Óvæntur meðlimur á liðsmynd Manchester United Enski boltinn Fleiri fréttir Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum „Þeir eiga allt þetta hrós fyllilega skilið“ Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Dýrmætur sigur HK-inga Ómar markahæstur í öruggum sigri FH hélt Selfossi á botninum Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Elín Klara í ham í Austurríki | Sveinar Guðjóns misstu Kiel fram úr sér Eyjakonur juku á raunir HK Brynjar sé Lamine Yamal handboltans: „Hef aldrei séð annað eins“ Mögnuð Jóhanna með yfir helming marka Hauka í sigri Fyrsti sigur lærisveina Arnórs kom í spennutrylli Gunnar með ellefu mörk í sigri Vals Haukur skoraði sjö í Íslendingaslag Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Hákon Daði Styrmisson: „Standardinn þarf að vera hærri“ Haukar halda sigurgöngunni áfram KA með sannfærandi sigur á Eyjamönnum Uppgjörið: Fram - Afturelding 24-42 | Niðurlæging í Úlfarsárdal Markmenn beggja liða áttu stórleik í sigri Fram Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Svekkjandi tap FH eftir góðan lokasprett Ellefu marka Ómar kom Magdeburg á toppinn Kannast ekki við krísufund á Hlíðarenda Danir fjalla um niðurlæginguna á Hlíðarenda „Held að fólk átti sig ekki á því sem við vorum að gera í kvöld“ Uppgjörið: Valur - Mors-Thy 39-28 | Þar lágu Danir í þvi Hörður svarar: „Svo alvarlegar ásakanir eiga ekki heima í opinberri umræðu“ Veittist að þjálfara í 3. flokki og málið á borð HSÍ Elvar með sex mörk í toppslagnum Sjá meira