Viðskipti innlent

Landsbankinn selur í Marel fyrir 4,7 milljarða

Horn fjárfestingarfélag, sem heldur utan um eignir Landsbankans í hlutabréfum, hefur selt um 7% hlut í Marel. Alls nam salan rúmlega 4,7 milljörðum kr.

Í tilkynningu til Kauphallarinnar segir að um hafi verið að ræða sölu á tæplega 50 milljónum hlutum á verðinu 95 kr. á hlut.

Horn er annar stærsti hluthafinn í Marel og átti fyrir þessi viðskipti um 20% hlut í Marel. Eftir viðskiptin er Horn enn annar stærsti hluthafinn með 13% hlut. Eyrir Invest er stærsti hluthafinn með um 32% hlut.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×