Landinn orðinn léttari í lundu 30. nóvember 2010 12:07
Nokkuð léttara var yfir landanum nú í nóvember en mánuðinn á undan ef marka má Væntingavísitölu Gallup sem birt var nú í morgun. Þannig hækkaði vísitalan um tæp 19 stig milli mánaða og gekk því sú mikla lækkun sem varð mánuðinn á undan að hluta til baka. Fjallað erum um málið í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Þar segir að þessi þróun komi í raun ekki á óvart enda var ólgan afar sýnileg í samfélaginu í október vegna fjárhagslegrar stöðu heimilanna og yfirvofandi niðurskurðar í opinberum rekstri. Mælist vísitalan nú 50,6 stig en sem kunnugt er mælir vístalan væntingar neytenda til efnahags- og atvinnulífsins en þegar vísitalan er undir 100 stigum eru fleiri neytendur svartsýnir en bjartsýnir. Allar undirvísitölur Væntingavísitölunnar hækkuðu á milli október og nóvember öfugt við það sem átti sér stað á milli september og október. Þó vegur þessi hækkun ekki upp þá lækkun sem átti sér stað síðast og eiga undirvísitölunnar því þó nokkuð í land með að ná sömu gildum og í september. Þó er ljóst að þetta bendir til þess að væntingar neytenda til núverandi ástands í efnahags- og atvinnumálum jafnt og ástandsins eftir sex mánuði eru meiri nú en fyrir mánuði síðan. Mest er hækkunin á væntingum til ástandsins í efnahags- og atvinnumálum eftir 6 mánuði sem hækka um tæp 29 stig og mælast nú 77,1 stig. Mat á núverandi ástandi hækkar mun minna, eða um tæp 4 stig og mælist áfram afar lágt, eða 10,8 stig. Breyttar væntingar til ástandsins í efnahags- og atvinnumálum þjóðarinnar eftir sex mánuði skýrir því hækkun sem varð á Væntingavísitölunni nú.
Mest lesið Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Viðskipti innlent „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Viðskipti innlent Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Viðskipti innlent Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Viðskipti innlent Bein útsending: Verðlaunaafhending Stjórnverðlaunanna Viðskipti innlent Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Seðlabankinn ósammála Daða Má Viðskipti innlent „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Bein útsending: Verðlaunaafhending Stjórnverðlaunanna „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Lovísa til Orkuveitunnar „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Anna Lísa til Aton Seðlabankinn ósammála Daða Má Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Sjá meira