Gagnaveitan greiði vexti af láni frá OR 16. september 2010 00:01 ljósleiðaravæðing Gagnaveita Reykjavíkur hefur á undanförnum árum lagt ljósleiðara inn á heimili víða á höfuðborgarsvæðinu.Fréttablaðið/GVA
Gagnaveitu Reykjavíkur ber að greiða eðlilega vexti af láni Orkuveitu Reykjavíkur til fyrirtækisins samkvæmt ákvörðun Póst- og fjarskiptastofnunar sem birt var í gær. Stofnunin átelur Gagnaveituna fyrir að fara ekki að skýrum fyrirmælum hennar. Í ákvörðun stofnunarinnar segir að til greina hefði komið að beita Gagnaveituna stjórnvaldssekt fyrir þessa háttsemi hefði stofnunin haft lagaheimild til þess. Lán Orkuveitunnar til Gagnaveitunnar er til komið vegna færslu eigna til Gagnaveitunnar við aðskilnað fyrirtækjanna, sem Póst- og fjarskiptastofnun mælti fyrir um. Stofnunin yfirfór samning um aðskilnað fyrirtækjanna, þar sem Orkuveitan lánaði Gagnaveitunni á móti eignum sem runnu inn í Gagnaveituna. Í upprunalegum samningi var kveðið á um vexti, en Póst- og fjarskiptastofnun taldi að stytta þyrfti lánstímann til að lánið teldist ekki niðurgreiðsla Orkuveitunnar á fjarskiptastarfsemi Gagnaveitunnar. Breyta þurfti lánasamningi fyrirtækjanna verulega, og inn í breyttan samning slæddist ákvæði um að lánið til Gagnaveitunnar skyldi vera vaxtalaust á lánstímanum, að því er fram kemur í ákvörðun Póst- og fjarskiptastofnunar. Í niðurstöðum stofnunarinnar segir að þarna hafi verið gengið þvert á skýr fyrirmæli hennar. Með þessu hafi einnig verið brotið gegn ákvæði laga um fjarskipti þar sem lagt er bann við því að samkeppnisrekstur fjarskiptafyrirtækja sé niðurgreiddur af einkaleyfisstarfsemi eða verndaðri starfsemi. Í ákvörðun Póst- og fjarskiptastofnunar segir að líta verði þessa hegðun stjórnenda fyrirtækisins alvarlegum augum. Stjórnendurnir geti ekki borið fyrir sig misskilning eða andvaraleysi gagnvart skýrum fyrirmælum stofnunarinnar. Í ákvörðun Póst- og fjarskiptastofnunar kemur fram að Gagnaveitan hafi þegar brugðist við með því að greiða áfallna vexti af láninu. Þar er áréttað að áfram skuli greiða vexti út lánstímann. brjann@frettabladid.is
Mest lesið Skilur að fólk hafi áhyggjur af falli Bitcoin en er sjálfur rólegur Viðskipti erlent Platar sjálfan sig á morgnana til að líða geðveikt fersk Atvinnulíf Hækka lánshæfiseinkunn Íslands í ljósi bættrar stöðu ríkisfjármála Viðskipti innlent Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Viðskipti innlent Stærsti Ímarkdagurinn í 40 ár: Alþjóðlegar stjörnur markaðsmála mæta Samstarf Bein útsending: Verðlaunaafhending Stjórnverðlaunanna Viðskipti innlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hækka lánshæfiseinkunn Íslands í ljósi bættrar stöðu ríkisfjármála Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Bein útsending: Verðlaunaafhending Stjórnverðlaunanna „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Lovísa til Orkuveitunnar „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Anna Lísa til Aton Seðlabankinn ósammála Daða Má Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Sjá meira