Skinney-Þinganes: 3,6 milljarðar í hagnað - 2,5 í afskriftir 1. nóvember 2010 14:09
Skinney-Þinganes hagnaðist um 3,6 milljarða króna í fyrra; en afskriftir hjá dótturfélagi námu tveimur og hálfum milljarði króna. Hagnaður sex stórútgerða í fyrra nam ríflega fjórföldum skattgreiðslum útgerðarinnar í heild. Fjallað er um afkomu fimmtán stærstu útgerða landsins á í Morgunblaðinu í dag. Þar eru teknar saman upplýsingar úr ársreikningum síðasta árs, þar sem þær liggja fyrir. Þessar útgerðir eru með samanlagt ríflega sextíu prósent af úthlutum aflaheimildum. Sex útgerðanna eru reknar með milljarða hagnaði. Samanlagt fjórtán komma sex milljörðum í fyrra. Tvær töpuðu samtals tæpum milljarði. Sjö reikninga vantar. En hvað greiðir útgerðin í sameiginlega sjóði? „Miðað við árið í ár þá eru þetta þrír milljarðar," sagði Adolf Guðmundsson, formaður LÍÚ, í viðtali við fréttastofu, á aðalfundi samtakanna fyrir helgi. Rekstrarhagnaður sex fyrirtækja á síðasta ári nemur því ríflega fjórföldum heildarskattgreiðslum útgerðarinnar. Samherji skilar mestu, þremur komma sex milljörðum króna. Rekstrarhagnaður Skinneyjar Þinganess nemur öðru eins, þremur koma sex milljörðum. Það varð að fréttum fyrir skömmu þegar Landsbankinn afskrifaði tvo og hálfan milljarð hjá dótturfélagi Skinneyjar Þinganess, og varð kveikja að mótmælum fyrir utan bankann. Fyrirtækið tengist Halldóri Ásgrímssyni fyrrverandi forsætisráðherra, sem á lítinn hlut í fyrirtækinu. Aðalsteinn Ingólfsson, framkvæmdastjóri Skinneyjar, segir að hluti hagnaðarins skýrist af þessum afskriftum; en afskriftin hjá dótturfélaginu er tekjufærð í samstæðureikningi Skinneyjar. Reikningsár Skinneyjar Þinganess, er almanaksárið. Í fréttatilkynningu Landsbankans um afskriftirnar segir hins vegar að skuldir dótturfélagsins hafi verið afskrifaðar í janúar í ár.
Mest lesið Hækka lánshæfiseinkunn Íslands í ljósi bættrar stöðu ríkisfjármála Viðskipti innlent Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Viðskipti innlent „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Viðskipti innlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Viðskipti innlent Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Viðskipti innlent Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Viðskipti innlent Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Viðskipti innlent Stærsti Ímarkdagurinn í 40 ár: Alþjóðlegar stjörnur markaðsmála mæta Samstarf Fleiri fréttir Hækka lánshæfiseinkunn Íslands í ljósi bættrar stöðu ríkisfjármála Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Bein útsending: Verðlaunaafhending Stjórnverðlaunanna „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Lovísa til Orkuveitunnar „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Anna Lísa til Aton Seðlabankinn ósammála Daða Má Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Sjá meira