Slíka muni er gaman að gefa sem jólagjafir eða skreyta eigið heimili með þeim í þeirri vitneskju að þeir þurfa ekki að rykfalla inni í kompu árstíða á milli.
Glithringir á aðventukrans
Kertahringirnir hér til hliðar kallast Lyngkolur og eru hannaðir fyrir Bility af Guðrúnu Lilju Gunnlaugsdóttur og Rúnu Thors. Hringina er upplagt að nota til að flikka upp á aðventukransinn og gera hann meira glitrandi. Hringirnir fást meðal annars hjá Kraum og í Epal.

Hlýlegir púðar í stofuna, skreyttir hreindýrum, sem lifa allan ársins hring en minna um leið á jólin.
Hönnuðirnir eru Stáss-tvíeykið Árný Þórarinsdóttir og Helga Guðrún Vilmundardóttir. Púðarnir fást meðal annars í Epal, Mýrinni og í safnbúð Þjóðminjasafnsins.

Rannveig Helgadóttir listmálari býr til fallegar handmálaðar bækur sem má nota sem gestabækur, undir uppskriftir eða hvaðeina.
Bækurnar fást meðal annars í í Sirku á Akureyri og Magmatika í Mosfellsbæ.

Hellur sem hannaðar eru af Öldu Halldórsdóttur og Guðrúnu Valdimarsdóttur og eru sniðug vara.
Hellurnar má nota sem disk undir kaffibolla og konfektmola, sushi, kökusneið, eða bara hvað sem fólki dettur í hug. Hellurnar fást meðal annars hjá Birkilandi.

Þóra Breiðfjörð keramiker hefur vakið mikla athygli síðustu árin fyrir hlýleg og frumleg verk sín. Þar má nefna kökudiska á nokkrum hæðum sem hún kallar Hrím og eiga einmitt vel við jólaborðið.
Þessi sítrónufjöll eru hennar nýjasta nýtt og þjóna hlutverki sítrónupressu. Þau fást á vinnustofu Þóru á Skúlaskeiði í Hafnarfirði. -jma