Halldór Jóhann: Nýt þess að spila handbolta Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 1. desember 2010 22:34 Halldór Jóhann Sigfússon.
Halldór Jóhann Sigfússon átti frábæran leik þegar að Fram vann tíu marka stórsigur á HK í N1-deild karla í kvöld. Halldór skoraði þrjú mörk og fiskaði eitt víti en hann var prímusmótor liðsins bæði í vörn og sókn. Hann hefur verið frábær á leiktíðinni og var maðurinn á bak við sigur Fram í kvöld. „Þetta var eins og við ætluðum okkur að hafa það - kannski að sigurinn hafi verið helst til of stór og ekki miðað við gang leiksins í seinni hálfleik," sagði Halldór Jóhann en HK minnkaði muninn í eitt mark um miðbik síðari hálfleiksins. „Það kom smá fát á okkur og bregðumst ekki nógu skynsamlega við því þegar ég er tekinn úr umferð. Svo misstum við Andra Berg út af með rautt spjald og Róbert Aron gat ekki spilað með í seinni hálfleik." „En þeir strákar sem komu inn af bekknum stóðu sig virkilega vel í kvöld." Halldór hefur þurft að glíma við meiðsli síðustu ár en hefur verið laus við þau í haust. „Ég hef unnið vel í mínum málum eftir að ég fékk brjósklos fyrir tveimur árum. Ég er meiðslafrír og nýt þess að spila handbolta og þá verður þetta útkoman." Fram var í miklu basli á þessum árstíma í fyrra og Halldór segir það ólíkt skemmtilegra að vera í toppbaráttunni nú. „Það er tvennt ólíkt að vera við toppinn en botninn en við tökum bara einn leik fyrir í einu. Við erum hvergi nærri hættir en gerum okkur grein fyrir því að við þurfum að gefa 100 prósent í hvern einasta leik. Við erum ekki betri en það."
Olís-deild karla Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Íslenski boltinn Tár féllu í Bakgarðshlaupinu Sport Nokkuð viss um að Íslandsmetið verði slegið Sport Finnur til með Arnari Handbolti Tvö lið hætt við HM og Spánverjar hlaupa í appelsínugulri viðvörun Sport Kærkominn sigur KA/Þór Handbolti „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Fótbolti Fleiri fréttir Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Sjá meira