Rekstur Kópavogsbæjar skilaði hálfum milljarði í afgang 22. september 2010 08:51
Rekstur Kópavogsbæjar skilaði rúmlega 500 milljóna kr. afgangi á fyrstu sex mánuðum ársins. Þetta kemur fram í óendurskoðuðu og ókönnuðu uppgjör Kópavogsbæjar fyrir fyrstu sex mánuði ársins 2010 sem sent hefur verið til Kauphallarinnar. Í tilkynningunni segir að aðalfrávikið frá áætlun liggur í fjármagnsliðum. Er þar aðallega um að ræða reiknaðan gengishagnað vegna erlendra lána, sem er um 1.200 milljónir kr., reiknaðar verðbætur sem urðu heldur meiri en áætlað var á fyrri árshelmingi og markaðsvexti sem reyndust hærri en áætlað var. Samkvæmt uppgjörinu eru heildartekjur heldur lægri en áætlað hafði verið en þær hafa verið að sveiflast í kringum áætlun það sem af er ári. Laun eru heldur hærri, annarsvegar vegna meiri þunga á fyrri hluta árs, en einnig vegna hækkunar á tryggingargjaldi. Annar rekstrarkostnaður er nánast á pari við áætlun. Afkoma samstæðu fyrir fjármagnsliði og afskriftir nemur alls 1.285 milljónum kr. en í áætlun var gert ráð fyrir 1.507 milljónum kr. Rekstrarniðurstaða er hinsvegar 508,4 milljónir kr. en áætlað var að hún yrði 21,8 milljón kr. miðað við hálft ár. „Þrátt fyrir erfiðar aðstæður í samfélaginu og með hliðsjón af samfélagslegum skyldum bæjarfélagsins, einkum þegar hart er í ári, hefur almennur rekstur bæjarsjóðs í stórum dráttum verið í takti við áætlun, sem unnin var í lok síðasta árs," segir í tilkynningunni.
Mest lesið Platar sjálfan sig á morgnana til að líða geðveikt fersk Atvinnulíf Hækka lánshæfiseinkunn Íslands í ljósi bættrar stöðu ríkisfjármála Viðskipti innlent Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Viðskipti innlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Stærsti Ímarkdagurinn í 40 ár: Alþjóðlegar stjörnur markaðsmála mæta Samstarf Bein útsending: Verðlaunaafhending Stjórnverðlaunanna Viðskipti innlent Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Viðskipti innlent „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Fleiri fréttir Hækka lánshæfiseinkunn Íslands í ljósi bættrar stöðu ríkisfjármála Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Bein útsending: Verðlaunaafhending Stjórnverðlaunanna „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Lovísa til Orkuveitunnar „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Anna Lísa til Aton Seðlabankinn ósammála Daða Má Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Sjá meira