Nox Medical hlaut Vaxtarsprotann í ár 5. maí 2010 10:34 Katrín Júlíusdóttir, iðnaðarráðherra, afhenti Sveinbirni Höskuldssyni framkvæmdastjóra Nox Medical Vaxtarsprotann 2010 að viðstöddum fulltrúum sprotafyrirtækja og stuðningsaðilum atvinnulífsins í Grasagarðinum Laugardal við hátíðlega athöfn í morgun.
Fyrirtækið Nox Medical ehf. hlaut í morgun Vaxtarsprotann 2010 sem er viðurkenning fyrir öfluga uppbyggingu sprotafyrirtækis. Fyrirtækið meira en tífaldaði veltu sína milli áranna 2008 og 2009 úr 16,5 milljónum kr. í um 175 milljónir kr. Fyrirtækin Hafmynd, Menn og Mýs og Valka fengu einnig viðurkenningar fyrir góðan vöxt á síðasta ári.Í tilkynningu segir að Vaxtarsprotinn er viðurkenning sem veitt er á vegum Samtaka iðnaðarins, Rannsóknamiðstöðvar Íslands og Háskólans í Reykjavík. Tilgangurinn er að vekja athygli á góðum árangri sprotafyrirtækja í örum vexti og skapa aukinn áhuga og skilning á uppbyggingarstarfi þessara fyrirtækja.Katrín Júlíusdóttir, iðnaðarráðherra, afhenti Sveinbirni Höskuldssyni framkvæmdastjóra Nox Medical Vaxtarsprotann 2010 að viðstöddum fulltrúum sprotafyrirtækja og stuðningsaðilum atvinnulífsins í Grasagarðinum Laugardal við hátíðlega athöfn í morgun.Við sama tækifæri var fyrirtækið Betware hf. skráð í úrvalsdeild íslenskra hátæknifyrirtækja, en fyrirtækið hefur áður hlotið viðurkenningu Vaxtarsprotans fyrir góðan vöxt. Stefán Hrafnkelsson framkvæmdastjóri fyrirtækisins tók við sérstakri viðurkenningu úr hendi Davíðs Lúðvíkssonar, forstöðumanns hjá SI/SSP af þessu tilefni. Þessi viðurkenning er veitt innan Samtaka iðnaðarins þegar sprotafyrirtæki hafa náð þeim áfanga að velta meiru en milljarði króna á ári. Síðasta fyrirtækið sem náði þessum áfanga var Roche Nimblegen á árinu 2008.Nox Medical ehf. er stofnað 2006 af verkfræðingum og heilbrigðisvísindafólki sem áður unnu hjá fyrirtækinu Flögu Medcare sem þá var verið að flytja úr landi.Starfsmenn fyrirtækisins í dag eru 8 talsins og veltuaukning fyrirtækisins á fyrsta ári eftir að ný afurð kom til sögunar hefur verið ævintýraleg. Þetta ár hefur einnig farið hratt af stað og miða áætlanir félagsins við að tvöfalda veltu síðasta árs á þessu ári.Það tók aðeins þrjú ár að koma fyrstu afurð fyrirtækisins á markað, sem lýsa má sem byltingarkenndri nýjung í svefnmælingum og byggir m.a. á nýjungum í þráðlausum tölvusamskiptum, gagnageymslu, skynjara- og rafeindatækni.
Mest lesið Birgir Ómar Haraldsson er látinn Viðskipti innlent „Ég held bara að við sem þjóð séum ekki tilbúin í þetta“ Viðskipti innlent Kennari kveður: „Allt gekk auðvitað út á rúntinn“ Atvinnulíf Bein útsending: Verðlaunaafhending Stjórnverðlaunanna Viðskipti innlent Skilur að fólk hafi áhyggjur af falli Bitcoin en er sjálfur rólegur Viðskipti erlent Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Viðskipti innlent „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Platar sjálfan sig á morgnana til að líða geðveikt fersk Atvinnulíf Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Viðskipti innlent Fleiri fréttir Birgir Ómar Haraldsson er látinn „Ég held bara að við sem þjóð séum ekki tilbúin í þetta“ Hækka lánshæfiseinkunn Íslands í ljósi bættrar stöðu ríkisfjármála Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Bein útsending: Verðlaunaafhending Stjórnverðlaunanna „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Lovísa til Orkuveitunnar „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Anna Lísa til Aton Seðlabankinn ósammála Daða Má Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Sjá meira