Allt klárt fyrir gulldepluna hjá HB Granda á Akranesi 17. nóvember 2010 13:33 Myndin er á vefsíðu HB Granda.
Þess er nú beðið að gulldepluveiðar glæðist en tvö skip HB Granda hafa undanfarna daga leitað að þessum smáa fiski frá Skerjadjúpi í vestri og austur fyrir Vestmannaeyjar. Á Akranesi eru starfsmenn fiskmjölsverksmiðju félagsins tilbúnir til þess að taka á móti afla og vinna hann en ekkert hefur verið unnið í verksmiðjunni frá því í júlí í sumar. Fjallað er um málið á vefsíðu HB Granda. ,,Hér er allt orðið skotklárt og nú bíðum við bara eftir því að skipin skili sér til hafnar," sagði Guðmundur Hannesson, verksmiðjustjóri á Akranesi, er rætt var við hann í morgun. Að sögn Guðmundar eru Faxi RE og Lundey NS nú við leit austan við Vestmannaeyjar en lítill afli hefur fengist á hafsvæðinu vestan við Eyjar. Þó mun Faxi vera kominn með um 80 tonna afla en sá afli fékkst í tveimur holum í Grindavíkurdjúpi. ,,Við höfum alls unnið úr rúmlega 30 þúsund tonnum af fiski á þessu ári. Fyrst var það gulldepla, þá loðna og kolmunni og í sumar tókum við á móti makríl sem ísfisktogararnir veiddu. Nú vonum við að gulldeplan gefi sig til og að loðnukvótinn verði aukinn verulega á komandi vertíð," sagði Guðmundur Hannesson en að hans sögn hefur tíminn verið notaður frá í sumar til þess að fara yfir búnað verksmiðjunnar. Alls munu 12 manns starfa á tveimur vöktum í verksmiðjunni á Akranesi þegar vinnsla hefst að nýju.
Mest lesið Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Viðskipti innlent „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Viðskipti innlent Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Viðskipti innlent Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Viðskipti innlent Bein útsending: Verðlaunaafhending Stjórnverðlaunanna Viðskipti innlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Seðlabankinn ósammála Daða Má Viðskipti innlent Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Viðskipti innlent „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Bein útsending: Verðlaunaafhending Stjórnverðlaunanna „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Lovísa til Orkuveitunnar „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Anna Lísa til Aton Seðlabankinn ósammála Daða Má Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Sjá meira