Markmið ESB styrkja samkeppnisstöðu Landsvirkjunar 17. apríl 2010 14:56 Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar. Mynd/Vilhelm Gunnarsson
Markmið Evrópusambandsins um losun gróðurhúsalofttegunda og nýir kolefnisskattar styrkja mjög samkeppnisstöðu Landsvirkjunar, en liður í framtíðarsýn fyrirtækisins er sókn inn á nýja markaði. Á sögulegum ársfundi Landsvirkjunar í gær þar sem forstjórinn Hörður Arnarson, greindi í fyrsta sinn frá raforkuverði sem stóriðjufyrirtækin greiða, útlistaði Hörður framtíðarsýn og breyttar áherslur í rekstri Landsvirkjunar. Eins og fréttastofa greindi frá í gær ætlar Hörður að minnka vægi framkvæmda, tími framkvæmdagleðinnar er því liðinn. Þess í stað verður aukin áhersla á sókn inn á nýja markaði. Nýjar leiðir verða fundnar fyrir Landsvirkjun til að græða peninga, ekki bara með því að selja stóriðjufyrirtækjunum orku. Hörður sagði að markmið Evrópusambandsins um að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda styrktu samkeppnisstöðu Landsvirkjunar. „Það eru hinsvegar pólitískar ákvarðanir sem hafa mikil áhrif á okkur og bæta mikið samkeppnisstöðu okkar,“ sagði Hörður. Evrópusambandið hefði sett sér skýr markmið um draga úr losun losun gróðurhúsalofttegunda um 20% fyrir 2020, framleiða 20% af raforku með endurnýjanlegum orkugjöfum og draga úr orkunotkun um 20%. Hörður vék að sóknarfærum Landsvirkjunar. Hann sagði að í ljósi breyttrar stöðu á raforkumörkuðum í Evrópu og Bandaríkjunum væru margir aðilar á markaðnum sem vildu færa sig úr því umhverfi sem þar hefur myndast. Landsvirkjun vill bæta við sig 20 nýjum viðskiptavinum. „Við þurfum ekki marga. Við erum ekki að leita af stórum hóp þannig að þetta er algjörlega framkvæmanlegt í mínum huga,“ sagði Hörður.
Mest lesið Birgir Ómar Haraldsson er látinn Viðskipti innlent Allar auglýsingar Ofurskálarinnar á einum stað Viðskipti erlent „Ég held bara að við sem þjóð séum ekki tilbúin í þetta“ Viðskipti innlent Margborgar sig að gera við stjörnu í rúðu: Carglass hefur opnað á Íslandi Samstarf Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Viðskipti innlent Kennari kveður: „Allt gekk auðvitað út á rúntinn“ Atvinnulíf Skilur að fólk hafi áhyggjur af falli Bitcoin en er sjálfur rólegur Viðskipti erlent Platar sjálfan sig á morgnana til að líða geðveikt fersk Atvinnulíf Bein útsending: Verðlaunaafhending Stjórnverðlaunanna Viðskipti innlent „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Birgir Ómar Haraldsson er látinn „Ég held bara að við sem þjóð séum ekki tilbúin í þetta“ Hækka lánshæfiseinkunn Íslands í ljósi bættrar stöðu ríkisfjármála Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Bein útsending: Verðlaunaafhending Stjórnverðlaunanna „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Lovísa til Orkuveitunnar „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Anna Lísa til Aton Seðlabankinn ósammála Daða Má Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Sjá meira