Icelandic Group skráð á markað hérlendis og erlendis 22. september 2010 07:19
Ætlunin er að skrá félagið Icelandic group á hlutabréfamarkað. Í tilkynningu um málið á vefsíðu Vestia segir að Framtakssjóðurinn mun beita sér fyrir skráninguni á næstu 18 til 24 mánuðum háð markaðsaðstæðum. "Í ljósi víðtækrar alþjóðlegrar starfsemi Icelandic Group og áhuga alþjóðlegra fjárfesta á félaginu, verða kannaðir kostir tvöfaldrar kauphallarskráningar, það er, að hlutabréf félagsins verði skráð í tveimur kauphöllum, bæði hér og erlendis," segir á vefsíðunni. "Til að breikka hluthafahópinn gerir Framtakssjóðurinn ráð fyrir að bjóða öðrum langtíma fjárfestum að kaupa allt að 35% hlut í félaginu á næstu mánuðum. Að mati Framtakssjóðsins mun samstarf við langtíma fagfjárfesta með áhuga og áherslu á sjávarafurðir auðvelda kauphallarskráningu félagsins og skapa því tryggari framtíð." Icelandic Group hét áður Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna og var meðal eigna Björgólfs Guðmundssonar þar til eftir hrunið haustið 2008 er félagið komst í eigu Landsbankans. Það var síðan selt Framtakssjóðnum nýlega. Hagnaður Icelandic Group af reglulegri starfsemi fyrir skatta var rúmir 2 milljarðar króna á fyrri hluta þessa árs. Rekstrarhagnaður jókst um 20 prósent og var 4,1 milljarður kr. Hagnaður fyrir skatta jókst um 135 prósent milli ára þrátt fyrir að árið 2009 hefði verið besta ár í sögu félagsins. Icelandic Group er alþjóðlegt sjávarútvegsfyrirtæki og eitt það stærsta sinnar tegundar í heiminum. Stór hluti íslenskra sjávarafurða er seldur af Icelandic.
Mest lesið Platar sjálfan sig á morgnana til að líða geðveikt fersk Atvinnulíf Skilur að fólk hafi áhyggjur af falli Bitcoin en er sjálfur rólegur Viðskipti erlent Hækka lánshæfiseinkunn Íslands í ljósi bættrar stöðu ríkisfjármála Viðskipti innlent Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Viðskipti innlent Stærsti Ímarkdagurinn í 40 ár: Alþjóðlegar stjörnur markaðsmála mæta Samstarf Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Bein útsending: Verðlaunaafhending Stjórnverðlaunanna Viðskipti innlent Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Viðskipti innlent „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Viðskipti innlent Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hækka lánshæfiseinkunn Íslands í ljósi bættrar stöðu ríkisfjármála Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Bein útsending: Verðlaunaafhending Stjórnverðlaunanna „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Lovísa til Orkuveitunnar „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Anna Lísa til Aton Seðlabankinn ósammála Daða Má Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Sjá meira