Erlendum ferðamönnum fækkar um 5% Jón Hákon Halldórsson skrifar 6. júlí 2010 11:59 Ferðamönnum hefur fækkað lítillega frá því í fyrra. Mynd/ Frikki.
Um 53.500 erlendir ferðamenn fóru frá landinu um Leifsstöð í síðasta mánuði og fækkar þeim um eitt þúsund manns frá sama mánuði í fyrra. Fækkunin í júní nemur tveimur prósentum milli ára, samkvæmt tölum frá Ferðamálastofu. Frá áramótum hafa 170.400 erlendir gestir farið frá landinu. Þetta eru um 8.500 færri en árinu áður og nemur fækkunin á tímabilinu tæpum fimm prósentum milli ára. Þróunin á milli einstakra markaðssvæða er nokkuð ólík í júní. Þannig er veruleg fjölgun frá Norður-Ameríku, eða rúm 21% á meðan fækkun er frá öðrum mörkuðum. Þó má sjá fjölgun hjá einstökum löndum, þannig fjölgar Þjóðverjum í júní um 13,3% á milli ára, Frökkum um 7,8% og Norðmönnum um 5,3%. Veruleg fækkun er hins vegar frá Hollandi, eða 38,8% og má m.a. rekja það til fjölda Hollendinga sem kom til landsins í tengslum við landsleik Íslands og Hollands í júní í fyrra í undankeppni HM í knattspyrnu. Hvað varðar fjölgun frá Bandaríkjunum þá hefur orðið mest aukning á farþegum sem dvelja hér á landi í 2-4 sólarhringa á leið sinni yfir hafið. Einnig hefur sætaframboð aukist til Bandaríkjanna. Sé litið á árið í heild eru niðurstöður áþekkar, þ.e. fjölgun frá Norður-Ameríku en fækkun víðast annars staðar. Góð fjölgun Breta fyrstu þrjá mánuði ársins skilar þó aukningu þaðan upp á 3,5% frá áramótum.
Mest lesið Kennari kveður: „Allt gekk auðvitað út á rúntinn“ Atvinnulíf Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Viðskipti innlent Bein útsending: Verðlaunaafhending Stjórnverðlaunanna Viðskipti innlent Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Viðskipti innlent Stærsti Ímarkdagurinn í 40 ár: Alþjóðlegar stjörnur markaðsmála mæta Samstarf Skilur að fólk hafi áhyggjur af falli Bitcoin en er sjálfur rólegur Viðskipti erlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Platar sjálfan sig á morgnana til að líða geðveikt fersk Atvinnulíf Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Viðskipti innlent Hækka lánshæfiseinkunn Íslands í ljósi bættrar stöðu ríkisfjármála Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hækka lánshæfiseinkunn Íslands í ljósi bættrar stöðu ríkisfjármála Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Bein útsending: Verðlaunaafhending Stjórnverðlaunanna „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Lovísa til Orkuveitunnar „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Anna Lísa til Aton Seðlabankinn ósammála Daða Má Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Sjá meira