Tónlist

Fínn peningur fyrir að selja lag í Grey‘s Anatomy

Freyr Bjarnason skrifar
Sindri Már Sigfússon og félagar í Seabear eiga lag í læknaþættinum vinsæla Grey´s Anatomy.
Sindri Már Sigfússon og félagar í Seabear eiga lag í læknaþættinum vinsæla Grey´s Anatomy. fréttablaðið/anton

„Ég hef aldrei séð þessa þætti. Ég bara vona að þeir séu ekki hræðilegir," segir Sindri Már Sigfússon úr hljómsveitinni Seabear sem á lag í læknaþættinum vinsæla Grey"s Anatomy, sem um 15 milljónir Bandaríkjamanna horfa á í hverri viku.

Lagið nefnist Cold Summer og hljómar í þætti sem verður frumsýndur í Bandaríkjunum í kvöld. Það er fyrsta smáskífulagið af nýjustu plötu sveitarinnar, We Built A Fire, sem kemur út hérlendis á mánudaginn. 

Seabear hefur áður átt lag í bandaríska þættinum Gossip Girl. „Við erum með höfundarréttarsamning við Warner. Þar er fólk mikið í því að reyna að koma tónlist í einhverja svona þætti," segir Sindri.

Sveitin er á leiðinni í langa tónleikaferð um Bandaríkin og Evrópu sem hefst á tónlistarhátíðinni South By Southwest í Texas 17. mars. Hún fær því heldur betur góða kynningu svona rétt í aðdraganda ferðarinnar, auk þess sem tekjurnar sem fást af laginu koma sér einkar vel. „Þetta er aðallega gott fyrir okkur peningalega séð fyrir þessa túra. Við þurfum alltaf að borga mikið fyrir flugið því við erum svo mörg. Það er alveg rosalegur peningur," segir Sindri.

Hljómsveitin hefur fengið styrk frá Loftbrú vegna flugkostnaðar en hefur ekki nýtt sér mögulega fyrirframgreiðslu frá þýska útgáfufélaginu Morr vegna ferðalagsins. „Við getum fengið peninga hjá þeim ef okkur vantar. Þá er það fyrirframgreiðsla fyrir plötusölu. Það er bara eins og að taka yfirdrátt að fá styrk frá þeim. Maður borgar þetta allt á endanum sjálfur."

Sindri vill ekki gefa upp hversu háa upphæð Seabear fær fyrir lagabirtinguna í Grey"s Anatomy. „Miðað við gengið núna er þetta mjög fínt. Þetta er mjög hátt tímakaup. Ætli þetta séu ekki þrjátíu sekúndur sem lagið hljómar, þannig að þetta eru margir þúsundkallar á sekúndu."

Hljómsveitin er nýkomin heim eftir tónleikaferð um Þýskaland og Noreg sem heppnaðist sérlega vel að mati Sindra þrátt fyrir tuttugu stiga kulda. „Það var uppselt á öllum stöðunum sem við fórum á og við höfum aldrei selt jafnmikið af plötum og bolum fyrr."

Næsta þriðjudag er förinni heitið til Bandaríkjanna en í sumar stefnir Seabear á að halda útgáfutónleika hér heima vegna nýju plötunnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.