Segja bannið loka konur inni 20. maí 2010 01:15 Veifar vegabréfi Franskar konur klæddar Niqab, alklæðnaði með andlitsblæju sem hylur allt nema augun. nordicphotos/AFP
Slæðubannið, sem franska þingið fær brátt til meðferðar, mun breyta lífi nærri tvö þúsund kvenna þar í landi sem dags daglega ganga með slæðu fyrir andlitinu að íslömskum sið. Franskir ráðamenn telja víst að bannið muni breyta lífi þessara kvenna til hins betra, en sumar kvennanna eru á öðru máli. Þær spá því að áhrif laganna á líf kynsystra þeirra muni birtast í því að konur haldi sig að mestu innandyra. Sumar segjast ætla að fara með málið fyrir mannréttindadómstól Evrópu ef þær verða handteknar vegna slæðuburðar. Nokkrar þessara kvenna ræddu við fréttamenn á þriðjudag, daginn áður en Michelle Alliot-Marie dómsmálaráðherra kynnti frumvarpið á ríkisstjórnarfundi. “Verði lögin samþykkt, tek ég ekki niður slæðuna,“ sagði Najat, fráskilin kona. Najat, sem á franska móður og marokkóskan föður, segist hafa hulið andlit sitt slæðu undanfarin tíu ár, og þar sem hún sé einstæð móðir geti enginn haldið því fram að eiginmaður hennar eða aðrir karlar stjórni klæðaburði hennar.- gb
Erlent Fréttir Mest lesið Egill Þór er látinn Innlent Setti ofan í við Ingu: „Vert þú ekki með þennan skæting við mig“ Innlent Brást of harkalega við dyraati Innlent Flugferðum aflýst Innlent Hyggst greiða atkvæði með bókun 35 Innlent Hvalveiðilögin barn síns tíma Innlent Grunur um alvarlega misþyrmingu barna Erlent Bagalegt að Sigríður og Helgi Magnús geti ekki unnið saman Innlent Lokað um Þrengsli og vegir víða á óvissustigi Veður Segir Grænland ekki falt Erlent Fleiri fréttir Grunur um alvarlega misþyrmingu barna Segir Grænland ekki falt Trump setur eignarhald Grænlands aftur á dagskrá Brenndi konu til bana í neðanjarðarlest í New York Sádar sagðir hafa sent fjórar viðvaranir Skutu niður eigin herþotu yfir Rauðahafi Færeyingar fagna tvennum göngum Íslenskur skurðlæknir hlúir að fólki í Magdeburg Mótmælt á meðan minningarathöfn stóð yfir „Þetta var gjörsamlega hræðilegt“ Fimm látnir og tvö hundruð særðir Koma naumlega í veg fyrir stöðvun ríkisreksturs Fimmtugur geðlæknir ók bílnum Heyrðu í þyrlum og öskrum út um gluggann Bifreið ekið á hóp fólks á jólamarkaði Hefja aftur leit að MH370 rúmum tíu árum eftir hvarfið Vara við upprisu ISIS Sjö ára stúlka stungin til bana í skóla Zagreb Eins og Pelicot hafi geymt glæpina á hörðu drifi í huga sínum Repúblikanar höfnuðu fjárlagafrumvarpi sem Trump studdi Sænskur rappari skotinn til bana í bílastæðahúsi Skoða hvort stunguárás hafi átt að líkjast morðinu í New York Mangione líka ákærður af alríkissaksóknurum Saksóknari sagður óhæfur í síðasta málinu gegn Trump Þrjátíu og fimm börn tróðust undir á jólahátíð Danskt sjúkrahús kært til lögreglu vegna tilrauna á ungum drengjum Musk og Trump valda uppnámi í Washington Skorar vestrið á hólm í 21. aldar einvígi Vaktin: Dominique Pelicot dæmdur í tuttugu ára fangelsi Hætta að rukka í almenningssamgöngurnar Sjá meira