Greining MP Banka spáir 4% verðbólgu í árslok 18. maí 2010 15:46
Greining MP Banka gerir ráð fyrir að verðbólga haldi áfram að hjaðna og verði komin í um 4% í lok þessa árs. Hjöðnun verðbólgunnar haldi áfram fram á mitt næsta ár og verði hún þá um 3,5%. Greining MP Banka kynnti spá um þróun verðbólgu og stýrivaxta á næstu mánuðum á morgunfundi í dag. Fjallað er um efni fundarins í Markaðspunktum greiningarinnar. Greiningin segir að viðbúið sé að þolinmæði launþega gagnvart stöðugleikasáttmálum sé þrotin og líkur á töluverðum launahækkunum í kjölfar kjarasamninga seinna á árinu hafa því aukist. Þegar líður á næsta ár kann hækkandi innflutningsverðlag vegna vaxandi verðbólgu í viðskiptalöndunum að þrýsta upp verðlaginu. Aftur á móti gæti verðbólgan gengið hraðar niður ef biðin eftir efnahagsbatanum dregst enn frekar á langinn eða ef gengi krónunnar tekur að styrkjast. Líklegt er að frekari dráttur á lausn Icesave-deilunnar muni áfram tefja fyrir framgangi efnahagsáætlunarinnar og afnámi gjaldeyrishafta. „Við reiknum með að peningastefnunefnd Seðlabankans muni halda sig við óbreytta stefnu og haldi áfram að lækka stýrivexti um allt að hálfa prósentu á hverjum þeirra fimm vaxtaákvörðunardaga sem eftir eru fram að áramótum. Gangi það eftir gætu stýrivextir staðið í 6% í árslok og innlánsvextir Seðlabankans í 4,5% ef að vaxtagangurinn verður ekki þrengdur frekar," segir í Markaðspunktunum.
Mest lesið „Ég held bara að við sem þjóð séum ekki tilbúin í þetta“ Viðskipti innlent Kennari kveður: „Allt gekk auðvitað út á rúntinn“ Atvinnulíf „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Viðskipti innlent Bein útsending: Verðlaunaafhending Stjórnverðlaunanna Viðskipti innlent Skilur að fólk hafi áhyggjur af falli Bitcoin en er sjálfur rólegur Viðskipti erlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Viðskipti innlent Platar sjálfan sig á morgnana til að líða geðveikt fersk Atvinnulíf Hækka lánshæfiseinkunn Íslands í ljósi bættrar stöðu ríkisfjármála Viðskipti innlent „Þá mætti maður til vinnu á meðan maður stóð í lappirnar“ Atvinnulíf Fleiri fréttir „Ég held bara að við sem þjóð séum ekki tilbúin í þetta“ Hækka lánshæfiseinkunn Íslands í ljósi bættrar stöðu ríkisfjármála Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Bein útsending: Verðlaunaafhending Stjórnverðlaunanna „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Lovísa til Orkuveitunnar „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Anna Lísa til Aton Seðlabankinn ósammála Daða Má Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Sjá meira